Ragnhildur Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbi Reykjavíkur, lauk leik á Amundi Czech Ladies Challenge mótinu í dag. Mótið er hluti af LET Access mótaröðinni, sem er sú næststerkasta á meðal atvinnukylfinga í Evrópu.
Hægt er að skoða skor mótsins hér
Leikið var á Panorama golfvellinum í Kacov, Tékklandi, og var verðlaunafé mótsins um 6.5 milljónir króna.
Ragga byrjaði mótið vel, lék fyrsta hringinn á pari vallarins, og var jöfn í 10. sæti mótsins eftir átján holur. Hún hitti fimmtán grín á hringnum, fékk fjóra fugla og kom sér í góða stöðu eftir erfiða byrjun.

Annan hringinn lék Ragga einnig á pari vallarins. Eftir að hafa verið þrjá yfir pari að fimmtán holum liðnum endaði hún hringinn af miklum krafti. Þrír fuglar á síðustu þremur holunum reyndust dýrmætir og Ragga jöfn í 9. sæti mótsins fyrir lokahringinn.

Síðasta hring mótsins lék Ragga á 76 höggum, fjórum yfir pari. Það skilaði henni 21. sæti mótsins, sem er flottur árangur. Fjórir kylfingar enduðu jafnir á einum undir pari í heildina, en það var hin franska Alice Kong sem stóð uppi sem sigurvegari eftir bráðabana.

Með árangrinum er Ragga komin í 31. sæti stigalistans, en þetta var hennar fimmta mót á tímabilinu. Efstu sjö kylfingarnir í lok tímabilsins fá fullan þátttökurétt á LET mótaröðinni á næsta tímabili, og var þetta skref í rétta átt.
Andrea Bergsdóttir er í 10. sæti stigalistans en var ekki á meðal keppenda í mótinu.