GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Fyrsti keppnisdagur

Fyrri degi höggleiksins er lokið á Nairn vellinum í Skotlandi. Veður og aðstæður voru eins og við var að búast. Hin danska Marie Eline Madsen er efst í mótinu á sex höggum undir pari eftir ótrúlega byrjun á hring dagsins.

Fylgjast með skori

Perla Sól Sigurbrandsdóttir lék hringinn á 76 höggum, fjórum yfir pari. Hún er jöfn í 75. sæti mótsins og einu höggi frá því að ná inn í efstu 64 sætin. Hún var einn yfir pari á fyrri níu og fékk þar þrjá skolla og tvo fugla. Á seinni níu fékk Perla sex pör, en þrír skollar í röð á holum 14-16 reyndust dýrir. Með flottum hring á morgun sjáum við hana komast lengra í mótinu. Perla hefur leik kl 10:52 að íslenskum tíma.

Hringur Perlu

Auður Bergrún Snorradóttir lék hringinn einnig á 76 höggum, fjórum yfir pari. Hún er því, líkt og Perla, jöfn í 75. sæti mótsins. Á hringnum fékk Auður fimm fugla, fimm skolla og tvo tvöfalda skolla. Hún er einu höggi frá niðurskurðarlínunni og er í góðum séns á að halda áfram í holukeppnina. Auður hefur leik kl 08:30 að íslenskum tíma.

Hringur Auðar

Eva Kristinsdóttir lék hringinn á 80 höggum. Hún er jöfn í 125. sæti mótsins og fimm höggum frá niðurskurðarlínunni. Fyrri níu holurnar reyndust erfiðar, en tveir sterkir fuglar í lokin gætu reynst mikilvægir í mótinu. Eva hefur leik kl. 12:09 að íslenskum tíma.

Hringur Evu

Á öðrum keppnisdegi kemur í ljós hvaða 64 kylfingar munu taka þátt í útsláttarkeppninni, sem hefst samdægurs. Gaman væri að sjá þær allar ná inn!

Frétt

Auður Bergrún Snorradóttir, GM, Eva Kristinsdóttir, GM, og Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR, eru á meðal keppenda á The Women’s Amateur Championship, Opna breska áhugamannamótinu. Mótið fer fram á Nairn vellinum í Skotlandi dagana 10.-15. júní 2025.

Mótið er eitt af sterkustu áhugamannamótum veraldar og á sér langa sögu. Það fór fyrst fram árið 1893 og getur sigur í mótinu opnað margar dyr í golfheiminum. Sigurvegarinn fær boð um að taka þátt í risamótum á borð við AIG Women’s Open, US Women’s Open, The Amundi Evian Championship, Chevron Championship, og hefð hefur skapast að sigurvegarinn fái boð um að taka þátt á National Women’s Amateur Championship sem fram fer á Augusta vellinum í Bandaríkjunum.

Nairn völlurinn í Skotlandi

Í mótinu, sem er skipt upp í tvo hluta, eru 144 keppendur frá 35 löndum. Á fyrstu tveimur dögum mótsins er leikinn 36 holu höggleikur þar sem efstu 64 kylfingarnir komast í gegnum niðurskurð. Eftir niðurskurð breytist mótið í útsláttarkeppni, þar sem leikin er holukeppni.

Fyrsta umferð holukeppninnar er leikin strax á eftir seinni hring höggleiksins þann 11. júní. Allar umferðir holukeppninnar eru 18 holur, nema úrslitin, þar sem leiknar eru 36 holur á sama deginum.

Eva Perla og Auður

Íslensku kylfingarnir hafa náð að kynnast vellinum og aðstæðum vel. Það rigndi aðeins í dag, líkt og sést á myndskeiðum hér að neðan, en veðrið næstu daga á að vera mjög fínt. Perla Sól hefur leik kl. 06:07 að íslenskum tíma, Eva kl. 07:24 og Auður kl. 13:15.

Hollið kl. 06:07

KylfingurLandSæti á heimslistaForgjöf
Perla Sól SigurbrandsdóttirÍsland540+3.5
Matilde ParteleÍtalía717+2.5
Freya RussellSkotland732+3.1

Hollið kl. 07:24

KylfingurLandSæti á heimslistaForgjöf
Eva KristinsdóttirÍsland908+2.1
Victoria KristensenDanmörk1357+4.4
Megan AshleySkotland942+2.2

Hollið kl. 13:15

KylfingurLandSæti á heimslistaForgjöf
Auður Bergrún SnorradóttirÍsland468+1.1
Ebba NordstedtSvíþjóð501+4
Sheridan ClancySkotland1014+3.8

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit í höggleiknum

Hægt verður að horfa á leiki í holukeppninni hér

Perla Sól lék í mótinu í fyrra en náði ekki í gegnum niðurskurð. Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir endaði í 2. sæti á mótinu árið 2021, og náði þar besta árangri íslensks kylfings í mótinu.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ