Gunnar Þór Heimisson, GKG, og Bryndís Eva Ágústsdóttir, GA, stóðu uppi sem sigurvegarar í Unglingamótaröðinni þessa helgina. Barri Björgvinsson, GHD, og Elísabet Þóra Ólafsdóttir, NK, sigruðu Golf 14 mótið í flokki 14 ára og yngri.
Annað mót Unglingamótaraðarinnar og fyrsta mót Golf 14 fóru fram um helgina á Kirkjubólsvelli í Sandgerði, og var frábær þátttaka í mótið.
Skoða öll úrslit í Unglingamótaröð
Unglingamótaröðin
Mótið fór fram dagana 23.-25. maí í flokki 15-18 ára og leikinn var 54 holu höggleikur án forgjafar.
Staðan eftir fyrstu tvo keppnisdaga
Frábært skor hefur einkennt mótið hingað til. Aðstæður og veður hafa verið með besta móti miðað við árstíma og okkar framtíðarkylfingar hafa nýtt sér það til fulls.
Í piltaflokki 15-18 ára eru kylfingar frá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar að raða sér í efstu sætin. Gunnar Þór Heimisson leiðir mótið með einu höggi. Gunnar hefur leikið báða sína hringi á 66 höggum, eða sex undir pari vallar. Hann hefur einungis fengið fjóra skolla á fyrstu tveimur hringjunum og er jafn með flesta fugla allra keppenda, eða fjórtán talsins.
Einu höggi á eftir Gunnari eru Guðjón Frans Halldórsson og Arnar Daði Svavarsson á ellefu höggum undir pari. Frábært skor hjá okkar framtíðarkylfingum.
Arnar Daði var efstur eftir fyrsta hring mótsins, sem hann lék á 65 höggum. Hann fylgdi því eftir með hring upp á 68 högg í gær hefur leikið mjög gott golf. Arnar fékk tvo erni á fyrsta hring og er einn af tveimur keppendum sem hafa afrekað það.
Guðjón Frans lék fyrsta hring mótsins á 71 höggi en gerði sér svo lítið fyrir og sló vallarmet á öðrum degi mótsins. Þann hring spilaði hann á 62 höggum, tíu undir pari. Hann var sex undir á fyrri níu og fjóra undir á seinni. Guðjón fékk einn örn, níu fugla og einn skolla á hringnum magnaða.

Efstu tólf kylfingarnir í piltaflokki eru undir pari fyrir síðasta keppnisdag, sem verður að teljast vel gert!
Í stúlknaflokki 15-18 ára er það Elva María Jónsdóttir, GK, sem leiðir mótið. Hún lék sína hringi á 75 og 70 höggum. Elva hefur leikið stöðugt golf í mótinu hingað til, en hún hefur fengið sex fugla og sjö skolla.
Höggi á eftir Elvu er Embla Hrönn Hallsdóttir, GKG. Hún hefur leikið sína hringi á 75 og 71 höggi, og gerir sig líklega til að hreppa toppsætið á síðasta keppnisdeginum. Líkt og Elva hefur hún leikið vel, og fengið sjö fugla, sjö skolla og einn tvöfaldan skolla.
Bryndís Eva Ágústsdóttir, GA, og Elísabet Ólafsdóttir, GKG, eru jafnar í þriðja sætinu á fjórum yfir pari.
Það er stutt á milli efstu kylfinga í bæði pilta- og stúlknaflokki og verður spennandi að fylgjast með hvernig lokadagurinn þróast.
Úrslit Unglingamótaraðarinnar
Í piltaflokki 15-18 ára voru mörg met slegin í mótinu.
Gunnar Þór Heimisson, GKG, lék hringi mótsins á 66-66-67 höggum og lauk leik á sautján höggum undir pari. Gunnar fékk 21 fugl í mótinu og einn örn. Þetta var ekki bara besta skor mótsins, heldur besta skor Unglingamótaraðarinnar frá upphafi. Náði hann með sigrinum að hefna fyrir mótið á Akranesi um síðustu helgi, þar sem hann tapaði í bráðabana um sigurinn.

Á eftir Gunnari var Arnar Daði Svavarsson, GKG. Hann lék einnig frábærlega í mótinu, og lauk leik á fjórtán höggum undir pari eftir hringi upp á 65-68-69. Arnar fékk tvo erni í mótinu og var jafn Gunnari með fæsta skolla allra kylfinga í mótinu.
Í þriðja sæti var Guðjón Frans Halldórsson, sem bætti vallarmetið á öðrum hring mótsins. Hann lauk leik á þrettán höggum undir pari.
Efstu tólf kylfingarnir í piltaflokki voru allir undir pari, en aldrei hafa jafn margir kylfingar í sama flokki verið undir pari yfir heilt mót á Unglingamótaröðinni.

Í stúlknaflokki 15-18 ára var það Akureyringurinn Bryndís Eva Ágústsdóttir sem sigraði mótið eftir hringi upp á 76-72-70. Eftir að hafa verið jöfn í 8. sæti eftir fyrsta keppnisdag lék engin jafn vel og Bryndís á seinni tveimur hringjunum. Það má segja að stöðugleiki Bryndísar hafi skipt sköpum í mótinu, en enginn kylfingur fékk fleiri pör en hún, alls 39.

Elísabet Ólafsdóttir, GKG, varð önnur. Hún lék gott golf í mótinu og spilaði á 74-74-73 höggum. Líkt og Bryndís var spilamennska hennar mjög stöðug allt mótið, en níu holu skor hennar voru 37, 37, 37, 37, 37 og 36.
Elva María Jónsdóttir, GK, endaði í þriðja sæti mótsins á +6 í heildina. Elva er fimmtán ára kylfingur, leiddi mótið meirihluta helgarinnar, og á greinilega framtíðina fyrir sér.

Golf 14
Mótið fór fram dagana 24.-25. maí í nokkrum flokkum.
- 14 ára og yngri 36 holur – leika 18 holur á laugardegi og 18 holur á sunnudegi
- 14 ára og yngri 9 holur – leika 9 holur á sunnudegi
- 12 ára og yngri 9 holur – leika 9 holur á sunnudegi
Staðan eftir fyrstu keppnisdaga Golf 14
Flokkar 14 ára og yngri drengja og stúlkna hóf leik í gær og munu leika sínar seinni 18 holur í dag. Aðrir flokkar sem spila 9 holur í mótinu hefja leik eftir hádegi.
Í drengjaflokki er það Dalvíkingurinn Barri Björgvinsson sem leiðir mótið. Barri lék fyrri hringinn á höggi undir pari, með þrjá fugla og tvo skolla.
Höggi á eftir Barra eru Matthías Jörvi Jensson, GKG, og Emil Máni Lúðvíksson, GKG, sem léku fyrsta hringinn á pari.
Í stúlknaflokki er Elísabet Þóra Ólafsdóttir, NK, í fyrsta sæti. Hún lék fyrsta hringinn á 84 höggum.
Á eftir henni, og jafnar í öðru sæti, eru Eiríka Malaika Stefánsdóttir og Hrefna Líf Steinsdóttir. Eiríka er í Golfklúbbi Mosfellsbæjar og Hrefna í Golfklúbbnum Keili. Þær léku báðar á 88 höggum.
Það er bjart og fallegt á Sandgerði í dag og má búast við alvöru keppni um efstu sætin!
Úrslit Golf 14
Dalvíkingurinn Barri Björgvinsson, GHD, hélt forystu sinni frá fyrri keppnisdegi og sigraði 36 holu flokk 14 ára og yngri drengja. Barri lék mótið á þremur höggum undir pari.
Höggi á eftir Barra var Ingimar Jónasson, GR, sem lék á 68 höggum á seinni keppnisdegi. Hörkuskor
Matthías Jörvi Jensson, GKG, varð þriðji á pari vallarins.

Í stúlknaflokki 14 ára og yngri – 36 holur, var það Elísabet Þóra Ólafsdóttir úr Nesklúbbnum sem stóð uppi sem sigurvegari. Hún lék hringina á 84-87 og sigraði mótið með þremur höggum.
Önnur var Eiríka Malaika Stefánsdóttir, GM. Hún lék mótið á 88-86 og hafði silfrið eftir góðan endasprett.
Höggi á eftir Eiríku, í þriðja sæti, varð Hrefna Líf Steinsdóttir, GK. Hún lék hringi sína á 88-87 höggum.

Önnur úrslit má finna hér:
12 ára og yngri stúlkur – 9 holur

12 ára og yngri strákar – 9 holur


14 ára og yngri stúlkur – 9 holur


14 ára og yngri strákar – 9 holur

Í Unglingamótaröðinni eru 80 keppendur frá 11 klúbbum. GKG sendir flesta kylfinga, alls 20, í mótið
Klúbbur | Stúlkur | Piltar | Samtals |
GA | 3 | 6 | 9 |
GK | 5 | 9 | 14 |
GKG | 9 | 11 | 20 |
GL | 0 | 5 | 5 |
GM | 4 | 5 | 9 |
GOS | 1 | 0 | 1 |
GR | 5 | 8 | 13 |
GS | 1 | 2 | 3 |
GSE | 2 | 0 | 2 |
GV | 1 | 0 | 1 |
NK | 0 | 3 | 3 |
Í Golf 14 eru 70 keppendur frá 10 klúbbum. GKG sendir einnig flesta í það mót, eða 15.
Klúbbur | Stúlkur | Drengir | Samtals |
GA | 1 | 4 | 5 |
GB | 0 | 1 | 1 |
GHD | 0 | 1 | 1 |
GK | 6 | 8 | 14 |
GKG | 4 | 11 | 15 |
GM | 4 | 5 | 9 |
GO | 3 | 2 | 5 |
GR | 1 | 9 | 10 |
GVS | 0 | 1 | 1 |
NK | 1 | 8 | 9 |