GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Uppfært:

Gunnlaugur hefur farið frábærlega af stað og situr jafn í 2. sæti mótsins. Hann lék seinni níu holurnar á þremur höggum undir pari, og bætti enn einum fuglinum við á sinni elleftu holu. Hann er fjóra undir pari eftir tólf holur og veður spennandi að fylgjast með næstu 24 holum hans.

Gunnlaugur Árni Sveinsson, kylfingur GKG, tekur þátt í lokaúrtökumóti fyrir U.S. Open í dag, mánudaginn 19. maí, á Bent Tree Country Club vellinum í Dallas, Texas. Gunnlaugur fer af stað klukkan 7:09 að staðartíma (12:09 að íslenskum tíma). 86 kylfingar munu berjast um 7 laus sæti, en þar á meðal eru margfaldir sigurvegarar á PGA mótaröðinni. Ljóst er að samkeppnin verður hörð.

Lokaúrtökumót U.S. Open er síðasta stigið í átt þátttöku í einu af fjórum risamótum golfsins. Þar leika kylfingar 36 holur á einum degi, og aðeins þeir efstu tryggja sér sæti á sjálfu U.S. Open mótinu. Lokaúrtökumótin fara fram á 13 stöðum, en Dagbjartur Sigurbrandsson mun leika í einu þeirra þann 2. júní.

Gunnlaugur Árni verður í holli með tveimur öflugum kylfingum:

  • Thomas Rosenmüller: Þjóðverji sem leikur á PGA mótaröðinni og var liðsfélagi Hlyns Bergssonar í háskólagolfinu hjá North Texas.
  • Lance Simpson: Bandarískur áhugamaður sem leikur fyrir háskólalið Tennessee. Hann er í 41. sæti á heimslista áhugamanna (WAGR), einu sæti fyrir neðan Gunnlaug, og var einu höggi á eftir honum í nýlegu svæðismóti NCAA.

Margir þekktir kylfingar taka þátt í lokaúrtökumótinu í Dallas. Meðal þeirra eru LIV Golf kylfingarnir:

  • Abraham Ancer
  • Branden Grace
  • Cameron Tringale
  • Carlos Ortiz
  • Kevin Na
  • Sergio Garcia

Svo margir eru PGA kylfingarnir í mótinu að merkara þótti að taka saman lista yfir þá þeirra sem hafi unnið á mótaröðinni:

  • Aaron Baddeley
  • Austin Eckroat 
  • Cameron Champ
  • Charley Hoffman 
  • Kevin Chappell 
  • Kevin Yu 
  • James Hahn 
  • Joel Dahmen 
  • Mackenzie Hughes 
  • Peter Malnati 
  • Ryan Moore 
  • Taylor Moore
  • Tom Kim
  • O.fl.

Gunnlaugur Árni hefur verið frábær á háskólamótum í Bandaríkjunum undanfarið ár og fær nú tækifæri til að komast á sitt fyrsta risamót. Hann lék æfingahringinn sinn með PGA sigurvegaranum Joel Dahmen, og er jákvæður fyrir deginum.

Hér má fylgjast með skori mótsins

Áfram Gulli!

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ