Guðmundur Ágúst
Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR. Mynd/seth@golf.is
Auglýsing

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, atvinnukylfingur úr GR, hóf leik í dag á Áskorendamótaröðinni – sem er næst sterkasta atvinnumótaröð í karlalflokki í Evrópu. Haraldur Franklín Magnús, GR, var á biðlista fyrir mótið og var hann í fimmta sæti á biðlistanum og komst hann ekki inn í mótið.

Mótið fer fram á Novo Sancti Petri í Cadiz héraði á Spáni og er það jafnframt þriðja síðasta mótið á keppnistímabilinu á ChallengeTour.

Hér er skor keppenda uppfært:

Næstu tvö mót fara fram á þessum velli, það fyrra fer fram dagana 5.- 8. nóvember og það síðara 11.-14. nóvember.  

Guðmundur Ágúst hefur á undanförnum dögum verið við æfingar á Costa Ballena sem er vel þekkt „Íslendingasvæði“ líkt og Novo Sancti Petri. 

Guðmundur Ágúst hefur farið hratt upp stigalistann á Áskorendamótaröðinni á þessu tímabili. Hann var í sæti nr. 135 þegar keppnistímabilið hófst. Besti árangur hans er 5. sætið á móti sem fram fór í Norður-Írlandi í byrjun september á þessu ári. 

Aðeins 45 stigahæstu kylfingarnir komast inn á lokamótið á Áskorendamótaröðinni sem fram fer á Mallorca 19.-22. nóvember og er Guðmundur Ágúst Kristjánsson í góðri stöðu varðandi lokamótið. Á lokamótinu á Mallorca keppa 45 efstu keppendurnir á stigalistanum um 20 efstu sætin sem tryggja keppnisrétt á Evrópumótaröðinni á næsta tímabili. 

Birgir Leifur Hafþórsson, sjöfaldur Íslandsmeistari í golfi, er eini íslenski atvinnukylfingurinn í karlaflokki sem hefur komist inn á lokamótið á Áskorendamótaröðinni. Birgir Leifur var í 35. sæti fyrir lokamótið en endaði í 37. sæti á lokastigalistanum. Það er besti árangur sem íslenskur kylfingur hefur náð á Áskorendamótaröðinni. 

Birgir Leifur er eini íslenski karlkylfingurinn sem hefur komist inn á sterkustu atvinnumótaröð Evrópu með fullan keppnisrétt. 

Aðeins fimm íslenskir karlkylfingar hafa verið með keppnisrétt á Áskorendamótaröðinni frá árinu 1999 þegar Birgir Leifur braut ísinn.

Birgir Leifur á 16 keppnistímabil að baki á Áskorendamótaröðinni og alls 155 mót. Besti árangur hans er 1. sæti árið 2017 á móti í Frakklandi og er það eini sigur hans á næst sterkustu atvinnumótaröð Evrópu. 

Árið 2002 lék Björgvin Sigurbergsson, GK,  á 11 mótum á Áskorendamótaröðinni og endaði í 179. sæti á stigalistanum. 

Axel Bóasson, GK, lék á 16 mótum árið 2018 og endaði í sæti nr. 224 á stigalistanum. 

Guðmundur Ágúst, GR,  er á sínu öðru tímabili á Áskorendamótaröðinni. Hann lék á 6 mótum í fyrra og endaði í sæti nr. 109 á stigalistanum. 

Haraldur Franklín, GR, er á sínu fyrsta tímabili á Áskorendamótaröðinni.

Mótin sem eru framundan á Áskorendamótaröðinni eru: 

5.-8. nóvember:

Iberostar Real Club de Golf Novo Sancti Petri, Cadiz.

11.-14. nóvember:

Iberostar Real Club de Golf Novo Sancti Petri, Cadiz.

19.-22. nóvember:

T-Golf & Country Club, Mallorca, Baleares.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ