Site icon Golfsamband Íslands

Vor í lofti – opið golfmót um helgina á Kirkjubólsvelli í Sandgerði

Fyrsta opna golfmót ársins 2015 fer fram um helgina á Kirkjubólsvelli í Sandgerði. Það er greinilegt að íslenskir kylfingar hafa beðið með eftirvæntingu eftir því að fá að spreyta sig í keppnisgolfi. Tæplega 80 manns eru nú þegar skráðir í mótið. Keppnisfyrirkomulagið er punktakeppni og samkvæmt veðurspá helgarinnar verður hitastigið á bilinu 5-8 stig.

Exit mobile version