GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Íslensku landsliðskylfingarnir Gunnlaugur Árni Sveinsson og Veigar Heiðarsson hófu keppni á Pauma Valley Invitational háskólamótinu í gær. Mótið fer fram rétt fyrir utan Los Angeles í Kaliforníu. 

Mörg sterkustu háskólalið Bandaríkjanna taka þátt í mótinu. Af þeim tíu liðum sem hafa náð besta árangrinum á þessu skólaári eru sex á meðal þátttökuliða. 

Rástímar og staðan í mótinu

Kraftmikill Veigar

Að fyrsta hring loknum er Veigar jafn í 38. sæti mótsins á einu höggi yfir pari. Veigar hóf leik á 10. holu vallarins og byrjaði hringinn á sterkum fugli. Eftir tvo skolla og einn tvöfaldan á næstu holum var Veigar þrjá yfir pari fyrir lokaholuna. Þar gerði hann sér lítið fyrir og sló annað högg sitt beint ofan í holuna, af 127 metra færi. Frábær endir á fyrsta hring Veigars, sem lék best allra úr sínum skóla og er í góðum málum fyrir næstu daga.

Fyrsti hringur Veigars

Veigar hóf nám við East Tennessee State háskólann síðasta haust og hefur tekið þátt í öllum sjö mótum skólans á þessu skólaári. Veigar náði sínum besta árangri í síðustu viku þegar hann lék á þremur höggum undir pari og hafnaði í 19. sæti í Louisiana Classics mótinu. Mót vikunnar verður það sterkasta sem Veigar hefur tekið þátt í á þessu skólaári. East Tennessee State háskólinn er í dag í 87. sæti yfir bestu háskólalið landsins og getur með góðum árangri í mótinu lyft sér vel upp listann sem myndi reynast afar mikilvægt í baráttunni í að komast áfram í úrslitakeppnina. 

Hæg byrjun Gunnlaugs

Gunnlaugur Árni lék ekki vel á fyrsta hring og kom í hús á 77 höggum, sex yfir pari vallarins. Gunnlaugur situr jafn í 83. sæti mótsins og mun horfa til þess að koma sér upp stöðutöfluna á næstu dögum.

Fyrsti hringur Gulla

Gunnlaugur Árni á góðar minningar frá þessu móti fyrir ári síðan þegar hann hafnaði í þriðja sæti og skólinn hans, LSU, sigraði með tíu högga mun. Mótið var sterkasta háskólamótið hans á síðasta skólaári fyrir utan úrslitamótið í deildarkeppninni.

Gunnlaugur Árni hafnaði í 13. sæti á sínu síðasta móti sem lauk í Flórída á þriðjudaginn. Mótið fór frá á Sawgrass CC sem er við hliðina á TPC Sawgrass en lokahringur The Players Championship fer þar fram í dag. Lið LSU sem er í 6. sæti yfir bestu háskólalið Bandaríkjanna, fylgdist með æfingadegi mótsins á miðvikudaginn þar sem þeir eyddu meðal annars deginum með Sam Burns, fyrrum liðsmannni LSU. Liðið var síðan fljótt komið þvert yfir landið til Kaliforníu og léku hinn sögufræga Torrey Pines golfvöllinn í gær sem líkt og TPC Sawgrass heldur árlegt mót á PGA mótaröðinni. 

Það verður spennandi að fylgjast með strákunum keppa á þessu sterka móti næstu daga. 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ