Tómas Eiríksson Hjaltested, kylfingur GR, er kominn í 32 manna úrslit Opna breska áhugamannamótsins, sem fer fram þessa dagana í Kent á Englandi.
Sex íslenskir kylfingar tóku þátt í mótinu í ár, en það er eitt allra sterkasta áhugamannamót hvers árs.
288 kylfingar léku 36 holu höggleik fyrstu tvo dagana þar sem efstu 64 kylfingarnir komust áfram í útsláttarhluta mótsins. Tómas spilaði vel, lék hringina tvo á tveimur undir pari og komst örugglega áfram á næsta stig mótsins.

Enginn af íslensku kylfingunum fylgdi Tómasi í 64 manna úrslitin, en Logi Sigurðsson tapaði í bráðabana um sæti í þeim.
Í 64 manna úrslitunum mætti Tómas hinum franska Paul Beauvy. Beauvy lék hringina tvo í höggleiknum á sex höggum undir pari og varð jafn í sjötta sæti. Það stefndi því í hörkuleik.
Tómas byrjaði hringinn af ótrúlegum krafti og fékk tvo fugla á fyrstu tveimur holunum. Hann bætti við forystu sína á þriðju holunni og var þá kominn þrjár upp eftir fimm. Fugl á sjöttu og sjöundu holunum gerðu það að verkum að Tómas átti fimm holur gegn Frakkanum knáa og Tómas í frábærri stöðu.
Eftir sigur á tíundu og elleftu holunni átti Tómas sjö holur þegar sjö voru eftir, og sigurinn nánast í höfn. Hann þurfti þó að bíða aðeins eftir honum, en leikurinn kláraðist á fimmtándu holu með 5/3 sigri Tómasar.
Frábær árangur hjá Tómasi sem mætir hinum þýska Tim Wiedemeyer í 32 manna úrslitunum í fyrramálið. Tim er í 68. sæti á heimslista áhugamanna og verður hart barist um sigurinn í einvígi morgundagsins.
Sigur í mótinu gefur þátttökurétt á Opna breska meistaramótinu, Opna bandaríska meistaramótinu og Masters mótinu.
Haraldur Franklín náði lengst allra íslenskra karla þegar hann komst í 8 manna úrslit mótsins árið 2014.
Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir á þó bestan árangur allra, en hún komst í úrslit mótsins árið 2021.