Auglýsing

Tilkynning frá viðbragðshóp GSÍ vegna Covid-19.

Á hádegi þann 31. júlí næstkomandi taka gildi hertar aðgerðir yfirvalda innanlands og á landamærum vegna COVID-19.

Varðandi almennan golfleik

Viðbragðshópur GSÍ leggur því til að golfklúbbar taki upp þær reglur sem tóku gildi frá og með 4. maí. Verða þær reglur í gildi þangað til annað verður tekið fram.

Tillaga að staðarreglum vegna samkomubanns frá 4. maí.

Minnisblað – Viðbragðshópur vegna Covid-19.

Varðandi mótahald

Viðbragðshópur GSÍ bíður eftir skýrum svörum frá ÍSÍ og sóttvarnalækni varðandi mótahald og hvaða áhrif þessar nýju aðgerðir hafa á það.

Golfsambandið er í virku samtali við ÍSÍ og yfirvöld og munum við koma áfram öllum nýjum upplýsingum eins hratt og unnt er eftir því sem fram vindur.

Hertar aðgerðir vegna Covid-19

Minnisblað sóttvarnalæknis 

Stjórn GSÍ hvetur golfhreyfinguna áfram til að sýna varkárni í allri starfsemi og fara að öllu með gát.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ