Golfklúbbur Öndverðarness heldur Heimslistamót á Öndverðarnesvelli fyrir kylfinga 19-23 ára dagana 3.-4. júní. Mótið gefur kylfingum tækifæri til að öðlast stig á heimslistanum.
Skráningu lýkur sunnudaginn 27. júlí kl. 23:59.
Keppnisskilmálar:
Mótið fer fram á Öndverðarnesvelli. Höggleikur í flokki karla og kvenna – 54 holur leiknar, 36 holur á þriðjudegi, 18 holur á miðvikudegi. Keppt skal samkvæmt móta- og keppendareglum GSÍ, staðarreglum GSÍ ásamt viðbótarstaðarreglum Öndverðarnesvallar.
Rástímar og ráshópar
Rástímar verða birtir í Golfbox eftir kl. 18:00 á sunnudeginum fyrir mót. Á fyrsta keppnisdegi ákveður mótsstjórn röðun í ráshópa en síðan verður raðað út eftir skori. Ræst verður út báða dagana frá kl. 8:00.
Þátttökuréttur
Að lágmarki 16 kylfingar þurfa að skrá sig til leiks í karlaflokki og 8 í kvennaflokki svo viðkomandi flokkur fari fram. Verði færri, fellur viðkomandi flokkur niður.
Mótsgjald
Karlaflokkur 19-23 ára Teigastæði Hvítur 11.000 kr.
Kvennaflokkur 19-23 ára Teigastæði Blár 11.000 kr.
Innifalið í mótsgjaldi er einn æfingahringur og ein fata æfingaboltar fyrir hvern hring. Vinsamlegast hafið samband við klúbbinn til að bóka æfingahringi.
Skráning og þátttökugjald
Þátttakendur skulu skrá sig í mótið í mótaskrá á Golfbox fyrir klukkan 23:59 laugardaginn fyrir mót, 26. júlí.
** Þátttökugjöld verða ekki endurgreidd ef afboðun kemur eftir að skráningarfresti lýkur.
Æfingahringur
Einn æfingahringur án endurgjalds er heimilaður. Vinsamlegast hafið samband við Golfklúbb GÖ á netfangið gogolf@gogolf.is til að panta rástíma. Skilyrði fyrir æfingahring er að búið sé að greiða þátttökugjald.
Verðlaun
Veitt verða verðlaun fyrir 1. – 3. sæti í flokki karla og kvenna.
Ef keppendur eru jafnir í fyrsta sæti þá verður leikinn bráðabani en að öðru leyti gilda móta- og keppendareglur GSÍ. Ef keppendur eru jafnir í öðrum sætum skiptast verðlaun jafnt milli þeirra keppenda.
Ítarlegri keppnisskilmála og skráningu má finna í hlekknum hér að ofan.