Golfklúbbur Hellu heldur Heimslistamót á Strandarvelli fyrir kylfinga 19-23 ára dagana 3.-4. júní. Mótið gefur kylfingum tækifæri til að öðlast stig á heimslistanum.
Skráningu lýkur laugardaginn 31. maí kl. 23:59.
Keppnisskilmálar:
Mótið fer fram á Strandarvelli. Höggleikur í flokki karla og kvenna 54 holur leiknar, 36 holur á þriðjudegi, 18 holur á miðvikudegi. Keppt skal samkvæmt móta- og keppendareglum GSÍ, staðarreglum GSÍ ásamt viðbótarstaðarreglum Strandarvallar.
Rástímar og ráshópar
Rástímar verða birtir í Golfbox eftir kl. 18:00 á sunnudeginum fyrir mót. Á fyrsta keppnisdegi ákveður mótsstjórn röðun í ráshópa en síðan verður raðað út eftir skori. Ræst verður út báða dagana frá kl. 8:00.
Þátttökuréttur
Að lágmarki 16 kylfingar þurfa að skrá sig til leiks í karlaflokki og 8 í kvennaflokki svo viðkomandi flokkur fari fram. Verði færri, fellur viðkomandi flokkur niður.
Mótsgjald
Karlaflokkur 19-23 ára Teigastæði Hvítur 11.000 kr.
Kvennaflokkur 19-23 ára Teigastæði Blár 11.000 kr.
Innifalið í mótsgjaldi er einn æfingahringur og ein fata æfingaboltar fyrir hvern hring. Vinsamlegast hafið samband við klúbbinn til að bóka æfingahringi.
Skráning og þátttökugjald
Þátttakendur skulu skrá sig í mótið í mótaskrá á Golfbox fyrir klukkan 23:59 laugardaginn fyrir mót, 31. maí.
Ítarlegri keppnisskilmála og skráningu má finna í hlekknum hér að ofan.