GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Tómas, Dagbjartur, Veigar, Logi, Guðjón og Gunnlaugur
Auglýsing

Sex íslenskir kylfingar hefja leik á Opna breska áhugamannamótinu (The Amateur Championship) í dag. Mótið fer fram dagana 16.-21. júní á tveimur völlum í Kent, Englandi: Royal St. George’s og Royal Cinque Ports. Þar mætast 288 af bestu áhugakylfingum heims.

Hægt er að fylgjast með skori mótsins hér

Okkar kylfingar

  • Dagbjartur Sigurbrandsson og Tómas Eiríksson Hjaltested spiluðu sig inn í mótið í gegn­um úrtökumót 13. júní. Þar mættu til leiks 72 kylfingar sem léku um 23 laus sæti í mótinu. Bæði Dagbjartur og Tómas léku hringinn á tveimur höggum undir pari og komust örugglega áfram.
  • Gunnlaugur Árni Sveinsson, Logi Sigurðsson, Veigar Heiðarsson og Guðjón Frans Halldórsson fóru beint inn í mótið vegna sterkrar stöðu á heimslista áhugamanna.
íslenski hópurinn

Á fyrstu tveimur hringjum mótsins er leikinn höggleikur. Allir kylfingar leika 18 holur á hvorum vellinum, annan hringinn í dag og hinn á morgun. Eftir þessa fyrstu tvo hringi komast 64 efstu kylfingarnir áfram í útsláttarhluta mótsins. Þar er leikin holukeppni sem hefst strax að öðrum hring loknum. Í henni mætast kylfingar einn á móti einum þar til einungis tveir standa eftir. Úrslitaviðureignin er sýnd um allan heim og verður þar leikin holukeppni yfir 36 holur.

Sigurvegari mótsins vinnur sér inn þátttökurétt á Opna breska meistaramótinu, Opna bandaríska meistaramótinu sem og á Masters mótinu. Það er því til mikils að vinna.

Stund á milli stríða

Vellirnir

  • Royal St. George’s GC: Notaður í höggleikinn og holukeppnina. Links völlur, par 70 (6.400m), stofnaður 1887 og hefur hýst Opna breska áhugamannamótið 13 sinnum
  • Royal Cinque Ports GC: Einungis notaður í höggleikinn. Links völlur, par 72 (6.600m), stofnaður 1892.
Það er ekki á allra færi að komast upp úr svona glompum

Rástímar(að íslenskum tíma)

Royal Cinque Ports

07:51 Gunnlaugur Árni Sveinsson

11:58 Tómas Eiríksson Hjaltested

12:47 Veigar Heiðarsson

Royal St. George’s

09:52 Dagbjartur Sigurbrandsson

11:58 Guðjón Frans Halldórsson

14:04 Logi Sigurðsson

Ólafur Björn Loftsson verður á svæðinu næstu daga og mun sýna frá okkar mönnum á Instagram og Facebook reikningum GSÍ.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ