PGA golfkennaraskólanum var slitið þann 17. júní með formlegri athöfn í veislusal Golfklúbbs Reykjavíkur. Alls voru 42 nýir golfkennarar útskrifaðir sem fullgildir PGA kennarar. Þetta er í sjötta sinn sem PGA á Íslandi útskrifar PGA golfkennara á Íslandi en félagið hefur alfarið séð um menntun golfkennara á Íslandi frá árinu 2006.

Athöfnin byrjaði á ræðu Huldu Bjarnadóttur, forseta Golfsambands Íslands. Útskriftin fór fram í kjölfari hennar og þar fengu útskriftarnemarnir prófskírteinið ásamt útskriftargjöf frá PGA.

Að því loknu sögðu Hrafnhildur Guðjónsdóttir og Birkir Þór Baldursson frá náminu. Björn Kristinn Björnsson, formaður PGA á Íslandi, sagði nokkur orð um mikilvægi skólans og hlutverk PGA í að mennta og endurmennta golfkennara. Hann þakkaði GSÍ fyrir gott samstarf, Arnari Má og skólanefndinni fyrir þeirra vinnu og Golfklúbbi Reykjavíkur, Golfklúbbnum Keili, Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, Háskóla Reykjavíkur og Golfsögu fyrir þeirra samstarf.
Arnar Már, skólastjóri, lokaði svo athöfninni með skemmtilegri ræðu þar sem hann fór yfir skólann og mikilvægi hans.

Golfsambandið óskar nýútskrifuðum golfkennurum til hamingju með áfangann.