Búið er að opna fyrir skráningu á Nettó mót Unglingamótaraðarinnar og Golf 14 sem fara fram á Leirdalsvelli og Mýrinni 5.-7. júní.
Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar er framkvæmdaraðili mótsins.
Unglingamótaröðin
Mótið fer fram dagana 5.-7. júní í flokki 15-18 ára og leikinn er 54 holu höggleikur án forgjafar. Að loknum 36 holum skal leikmönnum fækkað þannig að 70% leikmanna sem eru með besta skor í hvorum flokki halda áfram keppni.
Allar upplýsingar og skráningu má finna í hlekk hér að neðan
Golf 14 – Leirdalur
Mótið fer fram dagana 6.-7. júní
- 14 ára og yngri 36 holur – leika 18 holur á föstudegi og 18 holur á laugardegi – Leirdalur
Golf 14 – Mýrin
Mótið fer fram þann 6. júní
- 14 ára og yngri 9 holur – leika 9 holur á föstudegi – Mýrin
- 12 ára og yngri 9 holur – leika 9 holur á föstudegi – Mýrin
- 10 ára og yngri 9 holur – leika 9 holur á föstudegi – Mýrin
Allar upplýsingar og skráningu má finna í hlekk hér að neðan