Site icon Golfsamband Íslands

Opið fyrir skráningu fyrir keppendur 15-21 árs á unglingamótaröð GSÍ á Hlíðavelli

Fyrsta stigamót tímabilsins á unglingamótaröð GSÍ fer fram hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar dagana 26. – 28. maí 2023. GM er framkvæmdaraðili mótsins.

Í flokki 17-21 árs og 15-16 ára verður leikið á Hlíðavelli. Í flokkum 17-21 árs eru leiknar 54 holur en 36 holur í öðrum flokkum. Keppt skal samkvæmt gildandi reglugerð um stigamót unglinga og móta- og keppendareglum GSÍ.

Þátttakendur skulu skrá sig í mótið á www.golf.is fyrir kl. 11:59 miðvikudaginn 24 maí. Engar undantekningar á skráningu í mótið verða leyfðar eftir að skráningu lýkur, þó svo laus sæti séu í mótið. Allar breytingar á skráningu í mótið ber að senda í tölvupósti á golfmos@golfmos.is. Athugið að kylfingur verður ekki afskráður úr mótinu eftir að rástímar hafa verið birtir.

Smelltu hér til að skrá þig:

Áætlaðir rástímar

Föstudagur 08:00-09:30 – Athugið: Einungis flokkar 17- 21 árs
Föstudagur – hringur 2. 13:30 – 15:00
Laugardagur 07:30 – 11:30
Sunnudagur 07:30 – 09:30. Ath, einungis 15 til 16 ára.

Rástímar og ráshópar

Rástímar verða birtir á golf.is á miðvikudeginum fyrir mót. Ræst verður út af 1. teig.

Rásröðun

Laugardag: 15-16 ára, 17- 21 árs

Þátttökuréttur

Hámarksforgjöf í flokkum 17-21 árs kk er 15
Hámarksforgjöf í flokkum 17-21 árs kvk er 25
Hámarksforgjöf í flokkum 15-16 ára kk er 30
Hámarksforgjöf í flokkum 15-16 ára kvk er 36

Ef fjöldi skráðra fer yfir hámark í hverjum flokki miðast forgjöf kylfinga kl: 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur hverjir fá þátttökurétt.

Ef ekki næst hámarksfjöldi í einhverjum flokki verður mótstjórn heimilt að fjölga í öðrum.

Mótsstjórn heimilt að sameina flokka ef þátttakendur í flokki eru færri en 4.

17 – 21 árs

Mest 40 keppendur. 20 piltar og 20 stúlkur

Piltar
Hvítir teigar
6.000,- kr
Stúlkur
Bláir teigar 52
6.000,- kr

15 – 16 ára

Mest 40 keppendur 20 drengir og 20 stúlkur
Drengir
Gulir teigar
5.000,- kr
Stúlkur
Bláir teigar
5.000,- kr

Alls 80 keppendur.

Skráning

Þátttakendur skulu skrá sig í mótið á www.golf.is fyrir kl. 11:59 miðvikudaginn 24 maí. Engar undantekningar á skráningu í mótið verða leyfðar eftir að skráningu lýkur, þó svo laus sæti séu í mótið. Allar breytingar á skráningu í mótið ber að senda í tölvupósti á golfmos@golfmos.is. Athugið að kylfingur verður ekki afskráður úr mótinu eftir að rástímar hafa verið birtir.

Æfingahringur

Einn æfingahringur er innifalinn í mótsgjaldi. Æfingahringir skulu leiknir 24. eða 25. maí, hægt er að fá rástíma frá kl. 08:00 til 15:00. Rástímabókun í síma 5666999 eða á golfmos@golfmos.is

Vinsamlegast athugið að einungis seinni 9 holur Hlíðavallar eru opnar. Við munum opna inn á alla 18 holur vallarins á föstudaginn og það er því ekki hægt að spila æfingahring á þeim hluta vallarins.

Kylfuberar

Kylfuberar eru bannaðir.

Verðlaun

Verðlaunaafhending

Veitt verða verðlaun fyrir 1. – 3. sæti í öllum flokkum. Ef keppendur eru jafnir í fyrsta sæti verður leikinn bráðabani en að öðru gilda móta- og keppendareglur GSÍ. Ef keppendur eru jafnir í öðrum sætum skiptast stig og verðlaun jafnt milli þeirra keppenda.

Verðlaunaafhending fer fram að leik loknum hjá viðkomandi flokkum.

Mótsstjórn

Ágúst Jensson, Hlín Hlöðversdóttir, Dagur Ebenezersson, Gísli Karel Eggertsson.

Dómarar: Sigurður Geirsson og Davíð Baldur Sigurðsson.

Exit mobile version