Auglýsing

Fyrsta unglingamót tímabilsins sem telur til stiga á GSÍ mótaröðinni fer fram á Kirkjubólsvelli hjá Golfklúbbi Sandgerðis dagana 27.-29. maí 2022.

Opnað hefur verið fyrir skráningu í mótið – smelltu hér til að skrá þig.

Golfklúbbur Sandgerðis er framkvæmdaraðili mótsins.

Þátttakendur skulu skrá sig í mótið á golf.is fyrir kl. 23:59 mánudaginn 23. maí.

Engar undantekningar á skráningu í mótið verða leyfðar eftir að skráningu lýkur, þó svo laus sæti séu í mótið.

Allar breytingar á skráningu í mótið ber að senda í tölvupósti á gsggolf@gsggolf.is. Athugið að kylfingur verður ekki afskráður úr mótinu eftir að rástímar hafa verið birtir.

Leikfyrirkomulag keppninnar er höggleikur, 18 holur á dag.

Í flokkum 17-18 ára og 19-21 árs eru leiknar 54 holur en 36 holur í öðrum flokkum.

Keppt er samkvæmt gildandi reglugerð um stigamót unglinga og móta- og keppendareglum GSÍ.

Áætlaðir rástímar

Föstudagur Athugið: Einungis flokkar 17-18 ára og 19-21 árs
laugardagur     08:00 – 16:00
sunnudagur   08:00 – 16:00 

Rástímar og ráshópar

Rástímar verða birtir á golf.is á miðvikudeginum fyrir mót. Ræst verður út af 1. teig með 10 mínútna millibili. Á fyrsta keppnisdegi er keppendum raðað af handahófi á rástíma en síðan verður raðað út eftir skori. 

Rásröðun 

Föstudagur: 19-21 árs, 17-18 ára.
laugardagur: 19-21 árs, 17-18 ára, 15-16 ára og 14 ára og yngri.  
sunnudagur: 15-16 ára,14 ára og yngri, 19-21 árs og 17-18 ára, 

Þátttökuréttur

Hámarksforgjöf í flokkum 17-18 ára og 19-21 árs kk er 15 í fgj
Hámarksforgjöf í flokkum 17-18 ára og 19-21 árs kvk er 25 í fgj
Hámarksforgjöf í flokkum 15-16 ára og 14 ára og yngri kk er 30
Hámarksforgjöf í flokkum 15-16 ára og 14 ára og yngri kvk er 36

Ef fjöldi skráðra fer yfir hámark í hverjum flokki miðast forgjöf kylfinga kl:8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur hverjir fá þátttökurétt.

Ef ekki næst hámarksfjöldi í einhverjum flokki verður mótstjórn heimilt að fjölga í öðrum.

Mótsstjórn heimilt að sameina flokka ef þátttakendur í flokki eru færri en 4.

19 – 21 árs
Mest 18 keppendur
Piltar – gulir teigar, 6.000,- kr
Stúlkur – rauðir teigar, 6.000,- kr

17 – 18 ára
Mest 42 keppendur
Piltar – gulur  teigar, 6.000,- kr
Stúlkur – rauðir teigar, 6.000,- kr

15 – 16 ára
Mest 42 keppendur
Drengir – gulir teigar, 5.000,- kr
Stúlku – rauður teigar, 5.000,- kr

14 ára og yngri  
Mest 42 keppendur
Strákar – rauðir teigar, 5.000,- kr
Stelpur – rauðir teigar, 5.000,- kr

Alls 144 keppendur

Skráning
Þátttakendur skulu skrá sig í mótið á www.golf.is fyrir kl. 23:59 Mánudaginn23  jMai  Engar undantekningar á skráningu í mótið verða leyfðar eftir að skráningu lýkur, þó svo laus sæti séu í mótið. Allar breytingar á skráningu í mótið ber að senda í tölvupósti á gsggolf@gsggolf.is. Athugið að kylfingur verður ekki afskráður úr mótinu eftir að rástímar hafa verið birtir.

Æfingahringur
Einn æfingahringur er innifalinn í mótsgjaldi. Keppnisvöllurinn verður opinn til æfinga fyrir skráða keppendur í síðasta lagi einum degi fyrir mót. Vinsamlegast hafið samband við klúbbinn til að bóka rástíma. En athugið að greiða verður mótsgjaldið áður en æfingahringur er leikinn. Athugið almennar reglur um æfingahring.

Kylfuberar
Kylfuberar eru leyfðir í flokki 14 ára og yngri en bannaðir í öðrum flokkum.

Verðlaun
Veitt verða verðlaun fyrir 1. – 3. sæti í öllum flokkum. Ef keppendur eru jafnir í fyrsta sæti verður leikinn bráðabani en að öðru gilda móta- og keppendareglur GSÍ. Ef keppendur eru jafnir í öðrum sætum skiptast stig og verðlaun jafnt milli þeirra keppenda.

Þeir kylfingar sem leika 54 holur (17 til 21 árs)   

Verðlaunaafhending 
Verðlaunaafhending og lokahóf fyrir alla flokka verður haldin að lokinni keppni á laugardagskvöld. 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ