Golfsamband Íslands

Myndasyrpa frá EM í Póllandi – 4/1 tap gegn Austurríki

LEK kvenna 2016

Íslenska kvennalandsliðið skipað leikmönnum +50 ára tapaði 4/1 gegn Austurríki í B-riðli á Evrópumótinu sem fram fer á Sierra vellinum í Póllandi. Þórdís Geirsdóttir vann sinn leik en aðrar viðureignir töpuðust. Ísland mætir liði Póllands á morgun, föstudag.

Screen Shot 2016-09-01 at 6.06.52 PM

Í höggleikskeppninni náði Þórdís Geirsdóttir, Íslandsmeistari í +50 ára flokknum, bestum árangri af íslensku keppendunum. Þórdís lék á +9 samtals og endaði í 3. sæti.

Íslenska liðið endaði í 13. sæti af alls 16 þjóðum sem taka þátt.

 

Exit mobile version