GSÍ fjölskyldan
Auglýsing

Íslenskir atvinnu- og afrekskylfingar hafa verið að spila gott golf á alþjóðlegum vettvangi undanfarið.

Kylfingarnir okkar leika á mótaröðum um alla Evrópu og er gaman að fylgjast með gengi þeirra og ferðalögum. Í mótavaktinni eru mót vikunnar tekin saman, farið yfir úrslit og spáð fyrir gengi helgarinnar.

LET Mótaröðin

Guðrún Brá Björgvinsdóttir mætir til leiks á Tenerife Women’s Open, sem er hluti af LET mótaröðinni. Mótið fer fram á Abama golfvellinum á Tenerife dagana 5.–8. júní. Guðrún hefur spilaði sig inn á næstu fjögur mót mótaraðarinnar og deildi árangrinum með fylgjendum sínum.

Ég er virkilega ánægð að hafa náð þessu markmiði og tel það skref í rétta átt. Frábært að vera búin að ná að spila mig aftur inná Evrópumótaröðina. Ég mun keppa á LET allavegana næstu 4 mót. Þetta hefur verið langt og krefjandi ferðalag, en vinnan og þrautseigjan eru að skila sér.

Næstu mót Guðrúnar eru því:

  • 5.-8. júní – Tenerife Womens Open á Spáni
  • 12.-15. júní – Hulencourt Womens Open í Belgíu
  • 20.-22. júní – Tipsport Czech Ladies Open í Tékklandi
  • 26.-29. júní – Amundi German Masters í Þýskalandi

Hér má fylgjast með skori mótsins

LET Access Mótaröðin

Andrea Bergsdóttir keppir á LET Access mótaröðinni á Montauban Ladies Open sem fer fram dagana 6.-8. júní á Golf de Montauban vellinum í Frakklandi. Andrea hefur verið á góðu skriði undanfarið, en hún endaði í 4. sæti á Santander Golf Tour mótinu um síðustu helgi og skaust þar með upp í 19. sæti stigalistans. Hún stefnir á að halda áfram góðu gengi um helgina.

Hér má fylgjast með skori mótsins

Nordic Golf League

Á Nordic Golf League mótaröðinni eru þrír íslenskir kylfingar mættir til leiks á Samsø Festival Pro-Am mótinu í Danmörku, sem fer fram dagana 4.-6. júní á Samsø Golfklub. Það eru Aron Snær Júlíusson, ríkjandi Íslandsmeistari, Hlynur Bergsson og Sigurður Arnar Garðarsson. Eftir fyrsta hring mótsins er Aron á tveimur höggum undir pari og jafn í 20. sæti. Hlynur og Sigurður eru báðir á einu höggi undir pari og jafnir í 26. sætinu.

Hér má fylgjast með skori mótsins

HotelPlanner Tour

Á HotelPlanner mótaröðinni eru Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Haraldur Franklín Magnús skráðir til leiks á Swiss Challenge mótinu í Lucerne í Sviss. Mótið fer fram dagana 5.-8. júní á Golf Sempach vellinum.

Báðir tóku þeir þátt í Hvaleyrarbikarnum hér á Íslandi um síðustu helgi. Guðmundur endaði jafn í fyrsta sæti en laut í lægra haldi í bráðabana gegn Jóhannesi Guðmundssyni. Haraldur endaði jafn í 5. sæti mótsins.

Nick Carlson, kylfingur GM, er með fullan þátttökurétt á mótaröðina, en er ekki á meðal keppenda þessa vikuna.

Hér má fylgjast með skori mótsins

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ