Auglýsing

Karlalandsliðs Íslands skipað leikmönnum 50 ára og eldri keppir á Evrópumótinu sem fram fer í Danmörku.

Keppnin fer fram dagana 3.-8. september á Rungsted Golfklub.

Liðið er þannig skipað: Tryggvi Valtýr Traustason (GÖ), Guðmundur Arason (GR), Sigurður Aðalsteinsson (GÖ), Frans Páll Sigurðsson (GR), Sigurjón Arnarson (GR) og Einar Long (GR).

4. keppnisdagur:

Ísland tryggði sér 17. sætið með 4-1 sigri gegn Lúxemborg. Einar Long og Sigurður Aðalsteinss sigruðu 5/4 í fjórmenning. Guðmundur Arason og Tryggvi Valtýr Traustason gerðu jafntefli í sínum leikjum. Frans Páll Sigurðsson sigraði 5/4, Sigurjón Arnarsson sigraði einnig 5/4.

3. keppnisdagur:

Ísland sigraði Slóvakíu 4 1/2 – 1/2 í undanúrslitum um sæti 17-20. Einar Long og Sigurður Aðalsteinsson unnu fjórmenninginn 5/4.
Guðmundur Arason gerði jafntefli, Sigurjón Arnarsson sigraði 6/4, Tryggvi Valtýr Traustason sigraði 7/8 og Frans Páll Sigurðsson sigraði 5/4.

2. keppnisdagur:

Íslenska liðið lék á 410 höggum samtals á 2. keppnisdegi og endaði í 17. sæti. Liðið leikur því í C-riðli í holukeppninni um sæti 17-20.

Ísland og Lúxemborg fara beint í undanúrslit í riðli C.

Slóvakía – Litháen, og Pólland og Slóvenía mætast í 1. umferð og sigurliðin úr þeim viðureignum leika geng Ísland og Lúxemborg í undanúrslitum C-riðils.


Sigurður A.: 83 högg
Tryggvi T.: 82 högg
Einar L.: 84 högg
Sigurjón A.: 80 högg
Frans S.: 81 högg
—–
Guðmundur A.: 84 högg


1. keppnisdagur:

Ísland er í 15. sæti af alls 22 þjóðum. Fimm bestu skorin telja á fyrstu tveimur keppnisdögunum þar sem leikinn er höggleikur.

Frans S.: 74 högg
Guðmundur A.: 77 högg
Tryggvi Valtýr: 78 högg
Sigurjón A: 78 högg
Sigurður A.: 81 högg

Einar Long: 86 högg

Hér er hægt að fylgjast með gangi mála – skor, úrslit og rástímar:

Hér er hægt að fylgjast með gangi mála – skor, úrslit og rástímar:

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ