Site icon Golfsamband Íslands

Kynningarfundur PGA golfkennaraskólans 18. október

Mynd/PGA

PGA á Íslandi.

Þriðjudaginn 18. október kl. 20:00 fer fram kynningarfundur um PGA golfkennaraskólann. Á fundinum verður farið yfir uppbyggingu námsins og farið yfir helstu atriði sem lúta að náminu. Við hvetjum alla til að mæta sem hafa áhuga á að kynna sér málið nánar.

Við vekjum einnig athygli á því að fyrsta önnin er öllum opin (sem hafa náð 18 ára aldri og geta lesið og skrifað á ensku). Tilvalið fyrir t.d. aðila sem vilja læra grunnatriðin og geta kennt börnum og unglingum á réttan hátt.

Fundurinn verður haldinn í húsakynnum ÍSÍ í Laugardalnum.

Vonumst til að ykkur sem flest!

Exit mobile version