Korpubikarinn í samvinnu við First Water verður leikinn á Korpúlfsstaðavelli dagana 18. – 20. júlí.
Mótið er það fimmta á GSÍ mótaröðinni í ár þar sem bestu kylfingar landsins mæta til leiks og spila um Korpubikarinn.
Skráning er hafin á Golfbox og má sjá allar frekari upplýsingar um mótið i hlekk hér að neðan. Skráningu lýkur mánudaginn 14. júlí kl. 23:59.
Hámarksfjöldi keppenda er 132, hámarksforgjöf karla er 5.5 og kvenna er 8.5.
Leikið er á Korpúlfsstaðavelli, Sjórinn, Áin. Höggleikur í flokki karla og kvenna, 54 holur leiknar, 18 holur á föstudegi, 18 holur á laugardegi og 18 holur á sunnudegi. Eftir 36 holu leik skal leikmönnum fækkað þannig að þau 70% leikmanna sem eru með besta skor í hvorum flokki halda áfram keppni. Ef leikmenn eru á sama skori og sá sem er með lakastan árangur þeirra sem halda áfram skulu þeir báðir/allir halda áfram.
Karlaflokkur, teigstæði 63
Kvennaflokkur, teigstæði 52