Auglýsing

Íslandsmót unglinga í höggleik í flokki 15-21 árs fer fram á Leirdalsvelli hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar dagana 12.-14. ágúst. Á þessum keppnisvelli leika þrír aldursflokkar, 15-16 ára stúlkur, drengir, 17-18 ára stúlkur, drengir og 19-21 árs stúlknur og drengir.

Allir flokkar leika 54 holu höggleik án forgjafar

Opnað hefur verið fyrir skráningu – smelltu hér til að skrá þig.

Nánari upplýsingar hér fyrir neðan.

Þátttökugjöld skulu greidd við skráningu. Þátttökugjald fæst einungis endurgreitt séu forföll boðuð eigi síðar en kl. 18:00, þriðjudaginn fyrir mótið.

Þátttökurétt hafa (a) íslenskir ríkisborgarar og (b) erlendir kylfingar eftir a.m.k. þriggja ára samfellda búsetu hérlendis. Þátttakendur skulu vera félagar í golfklúbbi innan vébanda GSÍ.

Keppt skal í eftirtöldum flokkum:

Stúlknaflokkur 15-16 ára, hámarksforgjöf 17,0
Stúlknaflokkur 17-18 ára, hámarksforgjöf 17,0
Stúlknaflokkur 19-21 árs, hámarksforgjöf 14,0
Piltaflokkur 15-16 ára, hámarksforgjöf 13,0
Piltaflokkur 17-18 ára, hámarksforgjöf 9,0
Piltaflokkur 19-21 árs, hámarksforgjöf 6,0

Aldur miðast við almanaksár.

Þátttökurétt í hverjum flokki hafa, í þessari röð:

Sextán efstu leikmenn á unglingastigalista GSÍ á yfirstandandi ári í viðkomandi
flokki, þegar skráningarfresti lýkur. Ef tveir eða fleiri leikmenn eru jafnir í 16. sæti
skulu þeir báðir/allir fá þátttökurétt.

Sex efstu leikmenn í viðkomandi flokki á stigalista GSÍ á yfirstandandi ári, þegar
skráningarfresti lýkur. Ef tveir eða fleiri leikmenn eru með jafn mörg stig í 6. sæti
skulu þeir báðir/allir fá þátttökurétt.

Aðrir leikmenn sem fjærst eru forgjafarmörkum í sínum flokki kl. 8:00 morguninn
eftir að skráningarfresti lýkur. Standi val á milli keppenda með forgjöf jafn langt frá forgjafarmörkum skal hlutkesti ráða.

Hámarksfjöldi leikmanna er 150. Þó skulu að lágmarki 12 kylfingar fá þátttökurétt í hverjum flokki.

Allir flokkar leika 54 holu höggleik án forgjafar. Óheimilt er að hafa fleiri en þrjá keppendur í hverjum ráshóp.

Ef ekki er full skráning í einhverjum flokkum skulu þeir leikmenn sem fjærst eru forgjafarmörkum í sínum flokki (þar sem er umframskráning) fá þátttökurétt. Miðað er við forgjöf leikmanna kl. 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur. Standi val á milli leikmanna með sömu forgjöf skal hlutkesti ráða.

Forfallist kylfingur eftir að rástímar 1. umferðar hafa verið gefnir út skal sá kylfingur á biðlista sem er með lægstu forgjöf í viðkomandi flokki fá þátttökurétt í ráshópi þess sem forfallaðist.

Rástímar

Rástímar verða birtir í GolfBox fyrir kl.17:00 á miðvikudeginum fyrir mót. Ræst verður út af 1. teig með 10 mínútna millibili. Á fyrsta keppnisdegi er keppendum raðað af handahófi á rástíma en annan og þriðja dag verður raðað út eftir skori.

Skráning

Þátttakendur skulu skrá sig í mótið á www.golf.is fyrir kl. 23:59 á mánudeginum (8. ágúst) fyrir mótið. Mótsgjald er 7.500 kr.

Engar undantekningar á skráningu í mótið verða leyfðar eftir að skráningu lýkur, þó svo laus sæti séu í mótið. Allar breytingar á skráningu í mótið ber að senda tímanlega með tölvupósti á motanefnd@golf.is

Athugið að kylfingur verður ekki afskráður úr mótinu eftir að rástímar hafa verið birtir.

Æfingahringur

Einn æfingahringur án endurgjalds er heimilaður. Keppnisvöllurinn verður opinn til æfinga fyrir skráða keppendur í síðasta lagi einum degi fyrir mót. Vinsamlegast hafið samband við klúbbinn til að panta rástíma. Athugið að greiða verður mótsgjaldið áður en æfingahringur er leikinn. Að auki er aðgangur að golfhermum fyrir hring á keppnisdögum innifaldir í þátttökugjaldi. Athugið almennar reglur um æfingahring.

Vinsamlegast hafið samband við klúbbinn tímanlega til að bóka rástíma í æfingahringi á proshop@gkg.is en tímasetningar fyrir æfingahringi eru 8.-11. ágúst fyrir kl. 15 og eftir kl. 18. Völlurinn er lokaður frá kl. 13 þann 11. ágúst og þurfa leikmenn að hafa yfirgefið völlinn fyrir þann tíma.

Verðlaun

Veitt verða verðlaun fyrir 1. – 3. sæti í öllum flokkum. Ef keppendur eru jafnir í fyrsta sæti þá verður leikinn bráðabani en að öðru gilda móta- og keppendareglur GSÍ. Ef keppendur eru jafnir í öðrum sætum skiptast stig og verðlaun jafnt á milli þeirra keppenda.

Verðlaunaafhending verður haldin strax að lokinni keppni í hverjum aldursflokki fyrir sig.

Annað

Leikmenn skulu skrá rafrænt skor.

Dómari: Þorgrímur „Toggi“ Björnsson

Mótsstjórn: Úlfar Jónsson, Stefanía Kristín Valgeirsdóttir, Brynjar Geirsson, Kristín María Þorsteinsdóttir, Ólafur Björn Loftsson.

Birt með fyrirvara um breytingar.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ