GSÍ fjölskyldan
Auglýsing

Íslandsmót golfklúbba 18 ára og yngri fór fram á Strandarvelli á Hellu dagana 25.-27.júní.

Í stúlknaflokki 18 ára og yngri tóku átta lið þátt. Fyrst var leikinn höggleikur og raðað niður í tvo riðla út frá úrslitum hans. Efstu liðin í hvorum riðli, sveitir GM og GKG mættust í úrslitunum.

Golfklúbbur Mosfellsbæjar hafði betur í úrslitunum, 2-1 og er Íslandsmeistari golfklúbba í aldursflokknum. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar endaði í öðru sæti og Golfklúbbur Akureyrar í því þriðja.

Sveit GM sigraði alla leiki sína í mótinu og sótti 9.5 innbyrðis sigra af 12 mögulegum. Í sveitinni voru:

  • Auður Bergrún Snorradóttir
  • Birna Rut Snorradóttir
  • Gabríella Neema Stefánsdóttir
  • Eva Kristinsdóttir
  • Sara María Guðmundsdóttir
  • Liðsstjóri: Andri Ágústsson
Sveitin eftir sigurinn

Lokastöðuna og úrslit einstakra leikja má sjá í hlekknum hér fyrir neðan.

Úrslit riðlanna

Smelltu hér fyrir úrslit í holukeppni:

Smelltu hér fyrir úrslit í höggleik:

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ