GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Dómaranefnd GSÍ stendur fyrir héraðsdómaranámskeiði í febrúar mánuði eins og hefur verið gert síðustu ár. Fyrirlestrar verða 17., 19., 21. og 23. febrúar 2026, kl. 19:30 – 22:00. Fyrirlestrar eru sendir út á netinu og einnig teknir upp þannig að það er hægt að horfa þá aftur eða eftir hentugleika.

Námskeiðið er frítt fyrir meðlimi í golfklúbbum innan GSÍ.

Ekki er skilyrði að fara í prófið þó að fólk sæki námskeiðið. Prófið er rafrænt próf tekið á netinu þannig að það er engin fyrirstaða fyrir aðila á landsbyggðinni að sitja námskeiðið og taka prófið.

Það er ekki skilyrði að hafa setið námskeiðið til að geta tekið prófið. Þó er krafa að skrá sig á námskeiðið svo hægt sé að senda viðkomandi upplýsingar um námskeiðsefni og tengla á prófið. Ætlast er til þess að þeir sem sitja héraðsdómaranámskeiðið byrji á því að undirbúa sig með því að fara í gegnum 1.stigs golfregluskóla R&A.

Þátttöku í héraðsdómaranámskeiði er hægt að tilkynna með því að skrá sig hér Skráning á námskeið eða senda tölvupóst á domaranefnd@golf.is með (kennitölu, nafni og heiti golfklúbbs).

Dómaranefndin vill skora á forráðamenn golfklúbba að ræða við þá félaga sem þeir telja að gætu haft áhuga á að starfa fyrir klúbbinn á sviði mótahalds og dómgæslu og hvetja þá til að afla sér dómararéttinda.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ