GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Gunnlaugur Árni Sveinsson
Auglýsing

Íslenski landsliðskylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson stóð uppi sem sigurvegari á Fallen Oak Collegiate Invitational mótinu í bandaríska háskólagolfinu í kvöld. Þetta er annar sigur Gunnlaugs undir merkjum LSU, en ungstirnið hefur hafið tímabilið af miklum krafti. Sex af tuttugu sterkustu skólum landsins mættu til leiks og margir af bestu áhugakylfingum heims voru á meðal keppenda.

Fallen Oak mótið fór fram á samnefndum velli í Mississippi dagana 18.-20. október. Leikinn var 54 holu höggleikur í bæði einstaklings- og liðakeppni. Fjórtán skólar sendu lið í mótið, en keppendur voru alls 81.

Glompur vallarins eru ekki fyrir alla

Gunnlaugur lék hringina þrjá á 66-70-67 höggum og var þrettán undir pari í heildina.

Á fyrsta keppnisdegi lék landsliðskylfingurinn á 66 höggum, sex undir pari, sem reyndist besti hringur dagsins. Hann fékk sjö fugla, einn skolla og var nefndur „hinn íslenski Tiger“ á samfélagsmiðlum skólans. Deilt er um hvort vitnað sé þar í lukkudýr skólans, sem er tígrisdýr, eða sjálfan Tiger Woods.

Gunnlaugur var efstur eftir átján holur

Annan hringinn lék Gunnlaugur á tveimur höggum undir pari, fékk fjóra fugla, tvo skolla og var tveimur höggum á eftir liðsfélaga sínum, Matthew Dodd-Berry, fyrir lokahringinn.

Í dag lék Gunnlaugur frábært golf, fékk fimm fugla og tapaði ekki höggi. Mikil spenna var á lokasprettinum, en William Jennings úr Alabama háskólanum var jafn Gunnlaugi fyrir lokaholuna. Skolli hjá William á átjándu gaf okkar manni sigurinn, sem gat vart verið sætari. Foreldrar Gunnlaugs voru á vellinum ásamt Andrési Davíðssyni, sem er þjálfari Gunnlaugs hjá GKG.

Smelltu hér til að sjá úrslit mótsins:

Skóli Gunnlaugs, LSU, varð jafn í efsta sæti liðakeppninnar á 32 höggum undir pari. Þar leika sex kylfingar fyrir hvern skóla og gilda fjögur bestu skor liðsins á hverjum degi. LSU var í yfirburðastöðu fyrir lokahringinn, en tapaði ellefu höggum til Alabama háskólans á lokahringnum. Liðin deildu því gullinu.

Smelltu hér fyrir stöðuna í liðakeppninni:

Tímabilið fer frábærlega af stað hjá Gunnlaugi Árna, en hann hefur verið í efstu ellefu sætunum í öllum fjórum háskólamótum tímabilsins. Hann situr í 13. sætinu á heimslista áhugamanna sem stendur, en með árangrinum þykir þó líklegt að hann taki stökk upp listann á næstu dögum.

Hér má sjá úrslit úr mótum tímabilsins hjá Gunnlaugi:

VikaMótSæti
36Visit Knoxville Collegiate10
38Jackson T. Stephens Cup2
40The Bryan Bros Collegiate11
42Fallen Oak Collegiate Invitational1


Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ