GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Gunnlaugur Árni og Veigar
Auglýsing



Gunnlaugur Árni Sveinsson og Veigar Heiðarsson hefja keppni á morgun á Pauma Valley Invitational háskólamótinu sem fer fram rétt hjá Los Angeles í Kaliforníu. 

Mörg sterkustu háskólalið Bandaríkjanna taka þátt í mótinu. Af þeim tíu liðum sem hafa náð besta árangri á þessu skólaári eru sex á meðal þátttökuliða. 

Rástímar og staðan í mótinu

Gunnlaugur Árni á góðar minningar frá þessu móti fyrir ári síðan þegar hann hafnaði í þriðja sæti og skólinn hans, LSU, sigraði með tíu högga mun. Mótið var sterkasta háskólamótið hans á síðasta skólaári fyrir utan úrslitamótið í deildarkeppninni.

Gunnlaugur Árnihafnaði í 13. sæti á sínu síðasta móti sem lauk í Flórída á þriðjudaginn. Mótið fór frá á Sawgrass CC sem er við hliðina á TPC Sawgrass en lokahringur The Players Championship fer þar fram í dag. Lið LSU sem er í 6. sæti yfir bestu háskólalið Bandaríkjanna, fylgdist með æfingadegi mótsins á miðvikudaginn þar sem þeir eyddu meðal annars deginum með Sam Burns, fyrrum liðsmannni LSU. Liðið var síðan fljótt komið þvert yfir landið til Kaliforníu og léku hinn sögufræga Torrey Pines golfvöllinn í gær sem líkt og TPC Sawgrass heldur árlegt mót á PGA mótaröðinni. 

Veigar hóf nám við East Tennessee State háskólann síðasta haust og hefur tekið þátt í öllum sjö mótum skólans á þessu skólaári. Veigar náði sínum besta árangri í síðustu viku þegar hann lék á þremur höggum undir pari og hafnaði í 19. sæti í Louisiana Classics mótinu. Mót vikunnar verður það sterkasta sem Veigar hefur tekið þátt í á þessu skólaári. East Tennessee State háskólinn er í dag í 87. sæti yfir bestu háskólalið landsins og getur með góðum árangri í mótinu lyft sér vel upp listann sem myndi reynast afar mikilvægt í baráttunni í að komast áfram í úrslitakeppnina. 

Gunnlaugur Árni hefur leik á morgun kl. 15:52 á íslenskum tíma og meðal kylfinga í hans ráshópi er Preston Stout sem er í 3. sæti á heimslista áhugakylfinga. Veigar hefur leik kl. 16:54. 

Það verður spennandi að fylgjast með strákunum keppa á þessu sterka móti næstu daga. 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ