GSÍ fjölskyldan
Auglýsing

Golfklúbburinn Keilir er Íslandsmeistari golfklúbba 2025 í 1. deild kvenna. Þetta er í fjórtánda skiptið sem GK sigrar í efstu deild kvenna. Með sigrinum enduðu þær þriggja ára sigurgöngu GM í mótinu. Úrslitin réðust á Jaðarsvelli á Akureyri í dag, en andstæðingurinn í úrslitum mótsins var Golfklúbbur Reykjavíkur.

Smelltu hér til að sjá úrslit allra leikja mótsins

Alls tóku átta lið þátt í 1. deild kvenna í keppninni um Íslandsmeistaratitil golfklúbba 2025. 

Liðunum var skipt í tvo fjögurra liða riðla, þar sem tvö efstu liðin úr hvorum riðli komust í undanúrslit.

Tvö efstu liðin úr hvorum riðli komust í undanúrslit.

A-riðill:

Sveitir GA og GM fóru upp úr A-riðli mótsins. Heimaliðið frá Akureyri lék vel í riðlinum, og hóf mótið með sigri á sveit Mosfellsbæjar, sem kom inn í mótið sem ríkjandi meistari síðustu þriggja ára. GA vann alla sína leiki, en GM vann báða leiki sína eftir tapið gegn GA.

GKG endaði í þriðja sæti riðilsins og GOS í því fjórða.

B-riðill:

Hart var barist um efsta sætið í B-riðli. Eftir sigra í fyrstu tveimur leikjum sínum mættust sveitir GR og GK í hreinum úrslitaleik um efsta sæti riðilsins. Leikurinn var í járnum allan tímann. Elsa Maren Steinarsdóttir setti flott pútt í á 18. holunni, og tryggði GR með því jafntefli í leiknum. Það reyndist nóg, þar sem sveit GR fékk hálfan vinning meira en GK í hinum tveimur leikjum riðilsins.

Golfklúbbur Skagafjarðar endaði í þriðja sæti riðilsins, og Golfklúbburinn Oddur í því fjórða.

Undanúrslit:

Golfklúbburinn Keilir mætti Golfklúbbi Akureyrar í fyrri undanúrslitaleik mótsins. Tvímenningurinn gat ekki skilið liðin að, svo öll augu voru á fjórmenningnum. Þar var staðan jöfn eftir átján holur, og halda þurfti í bráðabana um laust sæti í úrslitum. Hafdís Jóhannsdóttir og Þórdís Geirsdóttir fengu par á fyrstu holu bráðabanans, sem reyndist nóg, og GK því á leið í úrslit mótsins.

Golfklúbbur Reykjavíkur sigraði Golfklúbb Mosfellsbæjar 4-1 í seinni undanúrslitaleiknum. Fjórir af fimm leikjum viðureignarinnar enduðu á átjándu holunni, en flestir þó GR í vil.

Úrslit:

Úrslitaleikurinn var í járnum frá upphafi. Þegar tólf holur voru liðnar voru tveir leikir jafnir, GK upp í tveimur og GR upp í einum.

Staðan breyttist lítillega á síðustu holunum. Keilir sigraði tvo leiki og GR einn, en tveir leikir enduðu í bráðabana. Guðrún Birna(GK) og Valdís Þóra(GR) voru jafnar eftir átján holur, sem og Elsa Maren(GR) og Guðrún Brá(GK).

Valdís á 19 holunni

Elsa fékk fugl á 19. holunni og sigraði leikinn, og öll augu því á leik Valdísar Þóru og Guðrúnar Birnu. Eftir pör á 19. og 20. holunum var það loks á 21. holunni sem hægt var að skilja þær að. Teighögg Valdísar endaði í vítasvæðinu og par Guðrúnar tryggði Íslandsmeistaratitilinn.

Úrslit:

  1. Golfklúbburinn Keilir
  2. Golfklúbbur Reykjavíkur
  3. Golfklúbbur Mosfellsbæjar
  4. Golfklúbbur Akureyrar
  5. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
  6. Golfklúbbur Selfoss
  7. Golfklúbbur Skagafjarðar
  8. Golfklúbburinn Oddur
Íslandsmeistarasveit Keilis
2 sæti Golfklúbbur Reykjavíkur
3 sæti Golfklúbbur Mosfellsbæjar

Fyrst var leikið á Íslandsmóti golfklúbba í kvennaflokki árið 1982. Mótið í ár er það 42. í röðinni. Frá árinu 1982 hafa 4 klúbbar fagnað þessum titli.

Golfklúbbur Reykjavíkur hefur oftast sigrað eða 22 sinnum, þar á eftir kemur Golfklúbburinn Keilir með 14 titla, Golfklúbbur Mosfellsbæjar er með 5 titla þar af eru þrír titlar þegar Golfklúbburinn Kjölur í Mosfellsbæ var til. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar hefur tvívegis fagnað sigri í efstu deild kvenna á Íslandsmóti golfklúbba.

Íslandsmót golfklúbba GSÍ – Íslandsmeistarar frá upphafi:

1982Golfklúbbur Reykjavíkur
1983Golfklúbbur Reykjavíkur
1984Golfklúbbur Reykjavíkur
1985Golfklúbburinn Keilir
1986Golfklúbbur Reykjavíkur
1987Golfklúbbur Reykjavíkur
1988Golfklúbbur Reykjavíkur
1989Golfklúbburinn Keilir
1990Golfklúbbur Reykjavíkur
1991Golfklúbburinn Keilir
1992Golfklúbbur Reykjavíkur
1993Golfklúbbur Reykjavíkur
1994Golfklúbburinn Keilir
1995Golfklúbburinn Keilir
1996Golfklúbburinn Keilir
1997Golfklúbburinn Keilir
1998Golfklúbburinn Kjölur
1999Golfklúbbur Reykjavíkur
2000Golfklúbbur Reykjavíkur
2001Golfklúbburinn Kjölur
2002Golfklúbburinn Keilir
2003Golfklúbburinn Keilir
2004Golfklúbbur Reykjavíkur
2005Golfklúbbur Reykjavíkur
2006Golfklúbburinn Keilir
2007Golfklúbburinn Kjölur
2008Golfklúbburinn Keilir
2009Golfklúbburinn Keilir
2010Golfklúbbur Reykjavíkur
2011Golfklúbbur Reykjavíkur
2012Golfklúbbur Reykjavíkur
2013Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
2014Golfklúbburinn Keilir
2015Golfklúbbur Reykjavíkur
2016Golfklúbbur Reykjavíkur
2017Golfklúbbur Reykjavíkur
2018Golfklúbbur Reykjavíkur
2019Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
2020Golfklúbbur Reykjavíkur
2021Golfklúbbur Reykjavíkur
2022Golfklúbbur Mosfellsbæjar
2023Golfklúbbur Mosfellsbæjar
2024Golfklúbbur Mosfellsbæjar
2025Golfklúbburinn Keilir

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ