GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Landsmótið í golfhermum 2026 er í fullum gangi. Um 250 kylfingar hafa tekið þátt í mótinu, en í dag er síðasti séns að taka þátt í undankeppninni.

Hægt er að taka þátt í mótinu í öllum TrackMan golfhermum landsins og hafa allir gildir félagsmenn í golfklúbbum innan vébanda GSÍ þátttökurétt. Mótið skiptist í þrjár umferðir:

Fyrsta undankeppnin fer fram dagana 7. febrúar – 16. mars. Í henni eru leiknar 18 holur á Korpúlfsstaðavelli (í golfherminum), og komast 48 efstu karlarnir og 24 efstu konurnar áfram í næstu umferð.

Önnur undankeppnin fer fram dagana 17. mars – 27. apríl. Þar leika bestu kylfingar fyrstu umferðarinnar 36 holur á sama velli, og halda tólf bestu karlarnir og tólf bestu konurnar áfram í úrslitakeppnina.

Úrslitakeppnin fer fram laugardaginn 2. maí í Íþróttamiðstöð GKG. Leiknar eru þar 36 holur til úrslita um titilinn Landsmeistari í golfhermum.

Í karlaflokki á Hjalti Hlíðberg besta skorið, en hann lék hringinn á níu höggum undir pari. Hjalti fékk sjö fugla, einn örn og var skollalaus. Niðurskurðarlínan í karlaflokkinum er eitt högg undir pari.

Hér má sjá stöðuna í karlaflokki

Ríkjandi meistarinn, Ragnhildur Kristinsdóttir á besta skorið í kvennaflokknum. Hún lék einnig á níu höggum undir pari, fékk níu fugla, örn og tvo skolla.

Hér má sjá stöðuna í kvennaflokki

Korpúlfsstaðavöllur

Landsmótið er mót sem GSÍ styður við sem hluta af öðru mótahaldi sambandsins en GKG er framkvæmdaraðili mótsins.

Hér að neðan má nálgast keppnisskilmála mótsins.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ