GSÍ fjölskyldan
Hulda Clara
Auglýsing

Hulda Clara Gestsdóttir hafnaði í fjórða sæti á Jabra Ladies Classic mótinu sem lauk í dag á Killarney CC golfvellinum í Jóhannesarborg í Suður-Afríku. Mótið er hluti af Sunshine atvinnumannamótaröðinni og lék Hulda Clara hringina þrjá á 69-72-67 höggum og var samtals á átta höggum undir pari. Hún var á lægsta skori allra kylfinga á lokahringnum og var einungis einu höggi frá því að komast í bráðabana um sigurinn í mótinu. Glæsileg frammistaða hjá Huldu Clöru sem er jafnframt hennar besti árangur eftir að hún gerðist atvinnukylfingur síðasta haust.

Lokastaðan

„Þetta var frábært mót á skemmtilegum en krefjandi velli. Ég var virkilega ánægð með leikinn minn og þá sérstaklega ákvörðunartökurnar mínar og hversu vel gekk að fylgja þeim eftir, segir Hulda Clara.

Andrea Bergsdóttir lék hringina þrjá á 75-73-70 höggum og var samtals á tveimur höggum yfir pari. Hún fór upp um 11 sæti á lokahringnum og endaði jöfn í 24. sæti. Guðrún Brá Björgvinsdóttir lék fyrstu tvo hringina á 76 höggum og komst ekki í gegnum niðurskurðinn. 

Næsta mót hjá stelpunum hefst á miðvikudaginn og fer það fram á Blair Atholl Golf and Equestrian Estate golfvellinum í Jóhannesarborg.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ