Auglýsing

Fjórir keppendur í 5. deild karla á Íslandsmóti golfklúbba fóru holu í höggi á Silfurnesvelli á Höfn í Hornafirði um s.l. helgi.

Heimamaðurinn Halldór Birgisson sló fyrsta draumahöggið á 5. holu í viðureign sinni gegn Heimi Þór Ásgeirssyni, úr Golfklúbbnum Vestarr frá Grundarfirði. Heimir Þór gerði sér lítið fyrir og fór einnig holu í höggi í þessari viðureign gegn Halldóri. Heimir Þór sló draumahöggið á 2. braut Silfurnesvallar, sem var sú 11. í viðureigninni. Þessi tvö högg slóu þeir á fyrsta keppnisdegi.

Kristbjörn Arngrímsson, úr Golfklúbbnum Hamri Dalvík, var sá þriðji sem fór holu í höggi í þessu móti og sló hann draumahöggið á 2. braut á öðrum keppnisdegi mótsins, föstudeginum.

Ásgeir Ragnarsson, úr Golfklúbbnu Vestarr, var í sama ráshóp og Kristbjörn á lokahringnum. Ásgeir sló draumahöggið á 8. braut sem var sú 17. og tryggði þar með Vestarr sigurinn í viðureigninn með þessu höggi. Þess má geta að Ásgeir og Heimir Þór eru feðgar.

<strong>Heimamaðurinn Halldór Birgisson sló fyrsta draumahöggið á 5 holu í viðureign sinni gegn Heimi Þór Ásgeirssyni úr Golfklúbbnum Vestarr frá Grundarfirði<strong>
<strong>Heimir Þór gerði sér lítið fyrir og fór einnig holu í höggi í þessari viðureign gegn Halldóri Heimir Þór sló draumahöggið á 2 braut Silfurnesvallar sem var sú 11 í viðureigninni Þessi tvö högg slóu þeir á fyrsta keppnisdegi<strong>
<strong>Kristbjörn Arngrímsson úr Golfklúbbnum Hamri Dalvík var sá þriðji sem fór holu í höggi í þessu móti og sló hann draumahöggið á 2 braut á öðrum keppnisdegi mótsins föstudeginum<strong>
<strong>Ásgeir Ragnarsson úr Golfklúbbnu Vestarr var í sama ráshóp og Kristbjörn á lokahringnum Ásgeir sló draumahöggið á 8 braut sem var sú 17 og tryggði þar með Vestarr sigurinn í viðureigninn með þessu höggi Þess má geta að Ásgeir og Heimir Þór eru feðgar<strong>

author avatar
Sigurður Elvar

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ