Frá Einvíginu á Nesinu 2019. Mynd/seth@golf.is
Auglýsing

Árlegt góðgerðarmót Nesklúbbsins, Einvígið á Nesinu (shoot-out), verður haldið í 24. skipti á Nesvellinum, mánudaginn 3. ágúst næstkomandi.  Venju samkvæmt er 10 af bestu kylfingum landsins fyrr og síðar boðið til leiks.  

Í fyrsta skipti í sögu mótsins hefur ekki náðst að fá beinan styrktaraðila að mótinu sem rekja má til ástands í þjóðfélaginu undanfarna mánuði.  Stjórn klúbbsins hefur tekið þá ákvörðun að halda mótið engu að síður og þá eingöngu í nafni NESKLÚBBSINS.  Þannig verður tekið á móti frjálsum framlögum frá félagsmönnum sem og öllum kylfingum, öðrum landsmönnum og fyrirtækjum sem vilja styrkja COVID deild Landspítala Íslands.  

Einvígið í ár verður þannig leikið í þágu VONAR.  VON er félag til styrktar skjólstæðingum gjörgæsludeildar E6 á Landspítalanum í Fossvogi.  Félagið var stofnað af hjúkrunarfræðingum gjörgæsludeildarinnar og allt starfsfólk deildarinnar tekur þátt í starfsemi félagsins.  Hornsteinn að verkum VONAR er að styðja og styrkja skjólstæðinga deildarinnar og þar ber fremst að nefna aðstandendaherbergi deildarinnar.  Öll framlög munu renna óskert til VONAR og verða upplýsingar um hvernig hægt er að styrkja VON í tengslum við EINVÍGIÐ Á NESINU 2020 birtar hér á heimasíðunni og víðar í næstu viku.

ATH: VEGNA COVID VERÐA ENGIR ÁHORFENDUR HEIMILAÐIR Á SVÆÐIÐ Á MEÐAN VIÐBURÐURINN STENDUR YFIR EN FJÖLMIÐLAR ERU VELKOMNIR.

Einvígið sjálft verður með sama sniði og síðastliðið ár.  Þannig verður enginn höggleikur um morguninn heldur mæta kylfingarnir beint í Einvígið sjálft (shoot-out) sem hefst klukkan 13.00.  Þar dettur eins og áður einn kylfingur út á hverri holu, þar til tveir berjast að lokum um sigurinn á 9. braut.  Sjónvarpsstöð Símans mun taka mót og sjónvarpa því síðar í sömu viku og verður Logi Bergmann á sínum stað eins og öll árin.

Keppendur 2020

Andri Þór Björnsson
Axel Bóasson
Björgvin Sigurbergsson
Bjarki Pétursson
Guðrún Brá Björgvinsdóttir
Haraldur Franklín Magnús
Hákon Örn Magnússon
Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
Ólafur Björn Loftsson

Sigurvegarar frá upphafi:

Magnús Lárusson hefur sigrað oftast í Einvíginu á Nesinu en hann sigraði þrívegis í röð 2004-2006. Ragnhildur Sigurðardóttir, Björgvin Sigurbergsson, Birgir Leifur Hafþórsson og Kristján Þór Einarsson hafa öll sigrað tvívegis á þessu skemmtilega móti.

1997: Björgvin Þorsteinsson (1)
1998: Ólöf María Jónsdóttir (1)
1999: Vilhjálmur Ingibergsson (1)
2000: Kristinn Árnason (1)
2001: Björgvin Sigurbergsson (1)
2002: Ólafur Már Sigurðsson (1)
2003: Ragnhildur Sigurðardóttir (1)
2004: Magnús Lárusson (1)
2005: Magnús Lárusson (2)
2006: Magnús Lárusson (3)
2007: Sigurpáll Geir Sveinsson (1)
2008: Heiðar Davíð Bragason (1)
2009: Björgvin Sigurbergsson (2)
2010: Birgir Leifur Hafþórsson (1)
2011: Nökkvi Gunnarsson (1)
2012: Þórður Rafn Gissurarson (1)
2013: Birgir Leifur Hafþórsson (2)
2014: Kristján Þór Einarsson (1)
2015: Aron Snær Júlíusson (1)
2016: Oddur Óli Jónasson (1)
2017: Kristján Þór Einarsson (2)
2018: Ragnhildur Sigurðardóttir (1)
2019: Guðmundur Ágúst Kristjánsson (1)

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ