Auglýsing

Sama hversu góðir kylfingar eru eiga þeir allir það markmið að spila á sem fæstum höggum. Sumir segja að það sé afrek að fara holu í höggi en aðrir vilja meina að það sé einskær heppni. Fyrri hópurinn telur kannski oftar þá kylfinga sem hafa náð að slá draumahöggið en það er langt frá því að allir kylfingar njóti þeirrar ánægju að fara holu í höggi.

Það liðu heil fjögur ár frá upphafi golfs á Íslandi þangað til fyrsta draumahöggið var slegið. Árið 1939 afrekaði Halldór Hansen læknir að slá fyrsta draumahöggið í sögu golfs á Íslandi. Þetta gerðist á fögrum sumardegi árið 1939 á gamla GR vellinum þar sem Kringlan og önnur mannvirki eru nú.

Á ári hverju ná um 140 kylfingar að slá draumahöggið. Einherjaklúbburinn heldur skrá yfir þessi atvik en þessir heppnu kylfingar verða sjálfkrafa meðlimir í þeim afrekshópi (eða heppnisklúbbi) með löglegri skráningu á atvikinu. 

Nánar um Einherjaklúbbinn hér:

17. október 1967 stofnuðu áhugamenn sem allir höfðu farið holu í höggi félagsskapinn sem þeir kölluðu Einherja. Klúbburinn fagnar því á þessu ári að 80 ár eru liðin frá fyrsta draumahögginu á Íslandi. Skráð draumahögg hjá Einherjaklúbbnum eru um 3.200 og ná allt aftur til afreksins hans Halldórs.

HolaFjöldi
Korpúlfsstaðir, hola 664
Urriðavöllur, hola 1543
Urriðavöllur, hola 842
Hvaleyrarvöllur, hola 442
Hvaleyrarvöllur, hola 642
Grafarholtsvöllur, hola 641
Nesvöllur, hola 241

Taflan hér að ofan sýnir þær golfholur sem hafa gefið kylfingum flest draumahögg. Vissulega eru þetta líka þeir golfvellir sem hvað mest eru spilaðir en væntingarnar ættu að vera í hámarki hjá kylfingum á þessum holum.

Einn kylfingur ber höfuð og herðar yfir aðra í keppninni um hver hefur farið oftast holu í höggi. Björgvin Þorsteinsson hefur löglega skráð 9 draumahögg á sínum ferli, en á hæla honum koma Sigurjón Rafn Gíslason 8 skipti, Björn Finnbjörnsson 7 skipti og Bert Hanson og Kjartan L. Pálsson með 6 högg skráð. 37 kylfingar hafa náð að fara 4 sinnum holu í höggi. 

Draumahöggið 2019.

Í tilefni þess að 80 ár eru liðin frá fyrsta draumahögginu á Íslandi hafa nokkrir styrktaraðilar í samstarfi við GSÍ, Nesklúbbinn og Einherjaklúbbinn ákveðið að bjóða til leiks. Þeir kylfingar sem fara holu í höggi á árinu 2019 og eru löglega skráðir hjá Einherjaklúbbnum geta unnið Mercedes-Benz til eignar eða nælt sér í utanlandsferð fyrir tvo. 

Þessum nýju Einherjum verður boðið að skrá sig til að slá eitt högg á Nesvellinum á holu 2 og sá sem verður næstur holu vinnur flugmiða frá Icelandair. Ef einhver nær að fara holu í höggi þá fær hann Mercedes-Benz bifreið að gjöf frá bílaumboðinu Öskju. 

Stefnt er að því að þessi viðburður verði árlegur á Nesvellinum.

Þeirra sem fara holu í höggi núna á golftímabilinu bíður þannig mjög spennandi tækifæri með haustinu og er þetta hvatning til allra um að vanda sig sérstaklega næst þegar slegið er af teig. Sumir vilja jú meina að það séu sérstakir hæfileikar að geta slegið holu í höggi. 


Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ