Böðvar Bragi Pálsson, Golfklúbbi Reykjavíkur, er Íslandsmeistari í holukeppni karla 2025 en hann sigraði Aron Snæ Júlíusson, Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, í úrslitaleiknum sem fram fór í dag á Hlíðavelli í Mosfellsbæ. Þetta er í fyrsta skiptið sem Böðvar sigrar mótið, en hann lék frábært golf síðustu dagana.
Tómas Eiríksson Hjaltested, Golfklúbbi Reykjavíkur, varð þriðji, en hann sigraði Arnar Daða Svavarsson, Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, 2/1 í leiknum um bronsverðlaunin.

Úrslitaleikurinn fór hratt af stað fyrir Böðvar Braga. Eftir fugla á holum 2, 3 og 5 var hann kominn þrjár holur upp. Aron fékk fugl á sjöundu holu, og báðir fengu þeir svo fugl á þá áttundu. Böðvar því fjóra undir pari eftir átta holur, en einungis tvær holur upp. Fimmti fugl Böðvars kom á níundu holu, og hann kom því í gegn á 30 höggum og þrjár holur upp.
Töluvert var farið að rigna um miðjan hring, og mikilvægt að halda sér þurrum. Aron reyndi við flöt á 10. holu en missti driveið út til hægri. Staðan því orðin mjög góð fyrir Böðvar, sem sigraði holuna.
Tveir skollar, á holum 11 og 15 gerðu leikinn örlítið spennandi, en þrír fuglar Böðvars á holum 12, 13 og 16 gerðu útslagið, og var sigurinn í höfn á 16. flötinni eftir frábært fuglapútt Böðvars.
Þetta er þriðja mót Böðvars á tímabilinu. Hann varð jafn í 17. sæti í Vormóti GÞ, og jafn í 8. sæti í Hvaleyrarbikarnum. Leið Böðvars í úrslitin má með sanni segja að hafi verið ótrúleg. Hann sýndi mikinn karakter í sigrum sínum, fór í bráðabana um að komast inn í holukeppnina og fór lengst 23 holur í útsláttarkeppninni.
Mótið hófst á 36 holu höggleik á laugardaginn, 21. júní, þar sem Böðvar endaði jafn fjórum öðrum kylfingum í 13. sæti. Einungis 16 kylfingar komust áfram, þannig þeir þurftu fimm að leika bráðabana um hverjir færu áfram í útsláttarkeppnina. Böðvar fékk fugl á fyrstu holu bráðabanans og tryggði sig beint áfram.
Í 16 manna úrslitunum mætti hann Veigari Heiðarssyni, sem var líklega leikur mótsins. Veigar lék frábærlega, og var sjö undir pari og þrjár holur upp eftir þrettán. Eftir það fékk Böðvar þrjá fugla í röð, jafnaði leikinn og kom sér í bráðabana. Bráðabaninn entist í fimm holur. Eftir fjögur pör frá báðum kylfingum fékk Veigar fugl. Það dugði ekki til, þar sem Böðvar fékk ótrúlegan örn og tryggði sér sæti í 8 manna úrslitunum.

Í 8-manna úrslitum lék Böðvar við Andra Þór. Leikur Böðvars og Andra var sá síðasti í umferðinni, þar sem Böðvar tók sinn tíma í að sigra leik sinn í 16 manna úrslitunum. Leikurinn var jafn allan tímann og voru þeir báðir í forystu á tímabili. Sjö fuglar Böðvars reyndust lykillinn að sigrinum, en leiknum lauk á 18. holu, 1/0.

Í undanúrslitum mættust klúbbfélagarnir Böðvar Bragi og Tómas Hjaltested. Tómas hafði leikið frábærlega í mótinu og gerði sig líklegan að sækja titilinn í mótinu. Böðvar hafði önnur áform, lék hringinn fimm undir pari og sigraði 7/5, sem var stærsti sigur mótsins. Hann kom því heitur inn í úrslitaleikinn, þar sem hann hélt góðri spilamennsku sinni áfram.

Við óskum Böðvari og öðrum verðlaunahöfum til hamingju með árangurinn.
Hér má sjá úrslit höggleiksins
Hér má sjá úrslit allra leikja í holukeppninni
Íslandsmeistarar í holukeppni í karlaflokki frá upphafi:
Alls hafa 27 leikmenn fagnað þessum titli í karlaflokki frá árinu 1988 þegar Íslandsmótið í holukeppni fór fyrst fram.
Birgir Leifur Hafþórsson er sigursælastur með alls fjóra titla 1994, 1996, 2004 og 2010. Björgvin Sigurbergsson er með þrjá titla, 1992, 1998 og 200.
Sex leikmenn hafa sigrað tvívegis, Úlfar Jónsson (1988 og 1993), Haraldur Heimisson (2001 og 2003), Ottó Sigurðsson (2005 og 2007), Kristján Þór Einarsson (2009 og 2014), Axel Bóasson (2015 og 2020) og Rúnar Arnórsson (2019 og 2020). Rúnar er sá eini sem hefur náð að verja titilinn í karlaflokki í þau 36 skipti sem mótið hefur farið fram.
MYND
Ár | Nafn | Klúbbur | Fjöldi titla | Staðsetning |
1988 | Úlfar Jónsson | GK | 1 | Hólmsvöllur, GS |
1989 | Sigurður Pétursson | GR | 1 | Grafarholtsvöllur, GR |
1990 | Sigurjón Arnarsson | GR | 1 | Hvaleyrarvöllur, GK |
1991 | Jón Karlsson | GR | 1 | Strandarvöllur, GHR |
1992 | Björgvin Sigurbergsson | GK | 1 | Hólmsvöllur, GS |
1993 | Úlfar Jónsson | GK | 2 | Hvaleyrarvöllur, GK |
1994 | Birgir Leifur Hafþórsson | GL | 1 | Strandarvöllur, GHR |
1995 | Örn Arnarson | GA | 1 | Grafarholtsvöllur, GR |
1996 | Birgir Leifur Hafþórsson | GL | 2 | Hólmsvöllur, GS |
1997 | Þorsteinn Hallgrímsson | GV | 1 | Hvaleyrarvöllur, GK |
1998 | Björgvin Sigurbergsson | GK | 2 | Grafarholtsvöllur, GR |
1999 | Helgi Þórisson | GS | 1 | Hólmsvöllur, GS |
2000 | Björgvin Sigurbergsson | GK | 3 | Strandarvöllur, GHR |
2001 | Haraldur Heimisson | GR | 1 | Garðavöllur, GL |
2002 | Guðmundur I. Einarsson | GR | 1 | Hvaleyrarvöllur, GK |
2003 | Haraldur Heimisson | GR | 2 | Hólmsvöllur, GS |
2004 | Birgir Leifur Hafþórsson | GKG | 3 | Grafarholtsvöllur, GR |
2005 | Ottó Sigurðsson | GKG | 1 | Hvaleyrarvöllur, GK |
2006 | Örn Ævar Hjartarson | GS | 1 | Grafarholtsvöllur, GR |
2007 | Ottó Sigurðsson | GKG | 2 | Urriðavöllur, GO |
2008 | Hlynur Geir Hjartarson | GK | 1 | Korpúlfsstaðavöllur, GR |
2009 | Kristján Þór Einarsson | GM | 1 | Kiðjabergsvöllur, GBR |
2010 | Birgir Leifur Hafþórsson | GKG | 2 | Garðavöllur, GL |
2011 | Arnór Ingi Finnbjörnsson | GR | 1 | Strandarvöllur, GHR |
2012 | Haraldur Franklín Magnús | GR | 1 | Leirdalsvöllur, GKG |
2013 | Guðmundur Ágúst Kristjánsson | GR | 1 | Hamarsvöllur, GB |
2014 | Kristján Þór Einarsson | GM | 2 | Hvaleyrarvöllur, GK |
2015 | Axel Bóasson | GM | 1 | Jaðarsvöllur, GA |
2016 | Gísli Sveinbergsson | GK | 1 | Hólmsvöllur, GS |
2017 | Egill Ragnar Gunnarsson | GKG | 1 | Vestmannaeyjavöllur, GV |
2018 | Rúnar Arnórsson | GK | 1 | Hólmsvöllur, GS |
2019 | Rúnar Arnórsson | GK | 2 | Garðavöllur, GL |
2020 | Axel Bóasson | GK | 2 | Jaðarsvöllur, GA |
2021 | Sverrir Haraldsson | GM | 1 | Þorláksvöllur, GÞ |
2022 | Sigurður Bjarki Blumenstein | GR | 1 | Hlíðavöllur, GM |
2023 | Aron Snær Júlíusson | GKG | 1 | Hamarsvöllur, GB |
2024 | Logi Sigurðsson | GS | 1 | Garðavöllur, GL |
2025 | Böðvar Bragi Pálsson | GR | 1 | Hlíðavöllur, GM |