Auður Bergrún Snorradóttir, GM, Eva Kristinsdóttir, GM, og Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR, eru á meðal keppenda á The Women’s Amateur Championship, Opna breska áhugamannamótinu. Mótið fer fram á Nairn vellinum í Skotlandi dagana 10.-15. júní 2025.
Mótið er eitt af sterkustu áhugamannamótum veraldar og á sér langa sögu. Það fór fyrst fram árið 1893 og getur sigur í mótinu opnað margar dyr í golfheiminum. Sigurvegarinn fær boð um að taka þátt í risamótum á borð við AIG Women’s Open, US Women’s Open, The Amundi Evian Championship, Chevron Championship, og hefð hefur skapast að sigurvegarinn fái boð um að taka þátt á National Women’s Amateur Championship sem fram fer á Augusta vellinum í Bandaríkjunum.

Í mótinu, sem er skipt upp í tvo hluta, eru 144 keppendur frá 35 löndum. Á fyrstu tveimur dögum mótsins er leikinn 36 holu höggleikur þar sem efstu 64 kylfingarnir komast í gegnum niðurskurð. Eftir niðurskurð breytist mótið í útsláttarkeppni, þar sem leikin er holukeppni.
Fyrsta umferð holukeppninnar er leikin strax á eftir seinni hring höggleiksins þann 11. júní. Allar umferðir holukeppninnar eru 18 holur, nema úrslitin, þar sem leiknar eru 36 holur á sama deginum.

Íslensku kylfingarnir hafa náð að kynnast vellinum og aðstæðum vel. Það rigndi aðeins í dag, líkt og sést á myndskeiðum hér að neðan, en veðrið næstu daga á að vera mjög fínt. Perla Sól hefur leik kl. 06:07 að íslenskum tíma, Eva kl. 07:24 og Auður kl. 13:15.
Hollið kl. 06:07
Kylfingur | Land | Sæti á heimslista | Forgjöf |
Perla Sól Sigurbrandsdóttir | Ísland | 540 | +3.5 |
Matilde Partele | Ítalía | 717 | +2.5 |
Freya Russell | Skotland | 732 | +3.1 |
Hollið kl. 07:24
Kylfingur | Land | Sæti á heimslista | Forgjöf |
Eva Kristinsdóttir | Ísland | 908 | +2.1 |
Victoria Kristensen | Danmörk | 1357 | +4.4 |
Megan Ashley | Skotland | 942 | +2.2 |
Hollið kl. 13:15
Kylfingur | Land | Sæti á heimslista | Forgjöf |
Auður Bergrún Snorradóttir | Ísland | 540 | +3.5 |
Ebba Nordstedt | Svíþjóð | 501 | +4 |
Sheridan Clancy | Skotland | 1014 | +3.8 |
Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit í höggleiknum
Hægt verður að horfa á leiki í holukeppninni hér
Perla Sól lék í mótinu í fyrra en náði ekki í gegnum niðurskurð. Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir endaði í 2. sæti á mótinu árið 2021, og náði þar besta árangri íslensks kylfings í mótinu.