/

Deildu:

Auglýsing

Það var fjölmenni í golfskálanum á Urriðavelli á frídegi verslunarmanna þegar haldið var formlegt afmælisboð í tilefni af 25 ára afmæli Golfklúbbsins Odds.

Þorvaldur Þorsteinsson framkvæmdastjóri GO ávarpaði gesti og til máls tóku Elín Hrönn Ólafsdóttir formaður GO, Óskar G. Sigurðsson fyrsti formaður GO, Haukur Örn Birgisson forseti GSÍ og Júlíus Rafnsson fyrrum forseti GSÍ.

Elín Hrönn veitti fyrir hönd golfklúbbsins þeim Svavari Geir Svavarsyni og Inga Þór Hermannssyni gullmerki GO fyrir þeirra störf á liðnum árum. Í máli sínu fór hún yfir það að Svavar Geir hefði verið í klúbbnum nánast frá stofnun hans og verið einn af þeim fyrstu sem skráðir voru í GO án aðildar að Oddfellowreglunni. Svavar hefur verið í stjórn klúbbsins lengur en nokkur annar og var fyrst kosinn í stjórn starfsárið 1995-1996 ásamt því að sitja svo í stjórn á árunum 2006–2017 eða í alls 12 starfsár af 25 í sögu klúbbsins. Svavar starfar í dag fyrir klúbbinn sem skrifstofu- og markaðsstjóri.

Frá vinstri: Þorvaldur Þorsteinsson, Svavar Geir Svavarsson, Ingi Þór Hermannsson og Elín Hrönn Ólafsdóttir.

Elín Hrönn fór einnig yfir sögu Inga Þórs Hermannsonar sem sat sem formaður golfklúbbsins Odds frá árinu 2009 – 2016 eða í alls 7 starfsár, lengur en nokkur annar formaður. Ingi Þór leiddi miklar umbreytingar í sinni stjórnartíð þar sem áhersla var lögð á að bæta rekstur klúbbsins og breyta ímynd og ásýnd hans. Í stjórnartíð Inga var mikil efling í félagsstarfi ásamt því að ímynd og áhersla golfklúbbsins fór að snúast um golfklúbbinn sem íþróttafélag. Þeim félögum var þakkað fyrir þeirra starf.

Óskar G. Sigurðsson færði golfklúbbnum gjafir en í máli sínu fór hann létt yfir sína sögu og aðkomu að starfi og upphafsárum golfklúbbsins. Júlíus Rafnsson færði svo golfklúbbnum fallegan og stóran hátíðarfána á standi að gjöf sem mun eflaust fá að njóta sín um ókomin ár.

Júlíus Rafnsson og Óskar G. Sigurðsson.

Haukur Örn færði golfklúbbnum árnaðaróskir frá Golfsambandinu.

Fjölmargir viðburðir hafa farið fram á þessu ári í tilefni 25 ára afmælis klúbbsins og í haust verður haldið áfram að fagna þessum tímamótum.

Glæsilegt afmælismót fór fram á þjóðhátíðardaginn 17. júní – og boðið var í kökuveislu eftir mótið. Á frídegi verslunarmanna var stórhátíð eins og sjá má þessum myndum. Afmælisárinu lýkur svo með glæsilegri golfferð til Lumine á Spáni þann 9. okt. Um 100 félagsmenn ætla að njóta samverunnar þar sem golfmót verður á dagskrá og að sjálfsögðu verður afmælinu fagnað enn og aftur.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ