Andrea Bergsdóttir endaði jöfn í þrettánda sæti á Islantilla Open, lokamóti LET Access mótaraðarinnar, sem fór fram á Spáni dagana 18.-20. nóvember. Andrea lék hringina þrjá á pari. Að tímabilinu loknu hafa hún, Hulda Clara Gestsdóttir og Ragnhildur Kristinsdóttir allar tryggt sér sæti á lokaúrtökumóti Evrópumótaraðar kvenna í desember.
Andrea lék fyrsta hringinn á pari og þann næsta á 68 höggum, fjórum höggum undir pari. Hún var jöfn í öðru sæti fyrir lokahringinn og fór út í síðasta holli mótsins. Andrea lék lokahringinn á 76 höggum.
Ragnhildur lék sinn besta hring á lokadeginum þegar hún kom í hús á 71 höggi, einu undir pari. Hún lék fyrstu tvo hringina á 76 og 74 höggum og lauk leik á fimm höggum yfir pari í heildina. Huldu Clöru vantaði tvö högg til að komast í gegnum niðurskurðinn.
Hulda Clara varð efst íslensku kylfinganna á stigalistanum og endaði í níunda sæti á sínu fyrsta tímabili sem atvinnukylfingur. Í júní vann hún sinn fyrsta sigur sem atvinnumaður á Czech Ladies Challenge í Tékklandi. Alls varð hún fimm sinnum á meðal tíu efstu, síðast í næstsíðasta móti tímabilsins í Girona á Spáni þar sem hún deildi fjórða sætinu.
Ragnhildur endaði í 22. sæti stigalistans. Hún varð önnur á Allegria Ladies Open í Austurríki í maí og komst aftur á verðlaunapall í júlí þegar hún varð þriðja á English Open í Manchester. Andrea endaði sæti á eftir Ragnhildi á stigalistanum, í 23. sæti. Hún varð fjórða á Ladies Slovak Golf Open í ágúst og náði sínum besta árangri mánuði síðar þegar hún deildi þriðja sætinu á Lavaux Ladies Open í Sviss.
Sjö efstu kylfingar stigalistans tryggðu sér keppnisrétt á Evrópumótaröðinni fyrir árið 2027. Þær sem enduðu í 8.-32. sæti komast beint á lokaúrtökumótið í desember. Þar fá Hulda Clara, Ragnhildur og Andrea tækifæri til að vinna sér keppnisrétt á sterkustu mótaröð Evrópu á næsta tímabili.


