GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Golfsamband Íslands hefur gefið út nýja sjálfbærniskýrslu fyrir golfhreyfinguna á Íslandi. Skýrslan, sem er gefin út bæði á íslensku og ensku, var unnin í samstarfi við GEO Foundation for Sustainable Golf og fjallar um stöðu og þróun sjálfbærnimála innan íslenskrar golfhreyfingar.

Um er að ræða þriðju árlegu sjálfbærniskýrslu GSÍ. Skýrslan byggir á gögnum fyrir árið 2025 og fyrri ár, auk þess sem farið er yfir framvindu verkefna á árinu 2026.

Í skýrslunni er fjallað um fjóra meginþætti sjálfbærs golfs: verndun náttúrunnar, ábyrga nýtingu auðlinda, loftslagsaðgerðir og eflingu samfélaga. Meðal viðfangsefna eru líffræðileg fjölbreytni, vatns- og orkunotkun, úrgangsmál, kolefnisspor golfvalla og samfélagslegt hlutverk golfíþróttarinnar.

Skýrslan er unnin í samstarfi við GEO Foundation, alþjóðleg samtök sem sérhæfa sig í sjálfbærni innan golfíþróttarinnar. Niðurstöðurnar byggja meðal annars á upplýsingum sem íslenskir golfklúbbar hafa skráð í OnCourse, stafrænt kerfi GEO Foundation sem auðveldar klúbbum að halda utan um sjálfbærnistarf sitt og fylgjast með árangri.

Alls hafa 26 íslenskir golfklúbbar skuldbundið sig til sjálfbærnistarfs með Sjálfbærnimerki GSÍ, 25 klúbbar nýta OnCourse-kerfið og fjórir klúbbar hafa hlotið alþjóðlega GEO-vottun.

Skýrslan er aðgengileg í hlekk hér að neðan.

Sustainable Golf in Iceland

Sjálfbært golf á Íslandi

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ