GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Lokamót LET Access mótaraðarinnar, Islantilla Open, hefst á morgun, miðvikudaginn 18. nóvember, á Spáni. Mikil spenna er fyrir lokamót tímabilsins þar sem sjö efstu kylfingar stigalistans tryggja sér keppnisrétt á Ladies European Tour (LET) á næsta ári. Hulda Clara Gestsdóttir, Ragnhildur Kristinsdóttir og Andrea Bergsdóttir eru á meðal keppenda mótsins.

Mótið fer fram dagana 18.-20. nóvember á Islantilla Golf Resort á Spáni. Alls taka 84 kylfingar þátt og verður leikinn 54 holu höggleikur með niðurskurði eftir tvo hringi, þar sem 45 efstu kylfingarnir komast áfram. Heildarverðlaunafé mótsins er 100.000 evrur, það hæsta á LET Access á þessu tímabili.

Hulda Clara hefur átt frábært fyrsta tímabil sem atvinnukylfingur og er í níunda sæti stigalistans með 1.163,33 stig. Aðeins 82,67 stig skilja hana frá Tékkneska kylfingnum Terezu Zapletal Kozeluhovu, sem situr í sjöunda sæti og því síðasta sem veitir beinan keppnisrétt á LET.

Hulda Clara kemur til leiks eftir frábæran árangur á Santander Golf Tour mótinu um síðustu helgi, þar sem hún hafnaði í fjórða sæti á átta höggum undir pari. Þetta var í fimmta sinn á tímabilinu sem Hulda Clara endaði á meðal tíu efstu.

Ragnhildur Kristinsdóttir og Andrea Bergsdóttir hafa sömuleiðis leikið vel á LET Access á árinu og eru báðar í góðri stöðu á stigalistanum.

Ragnhildur situr í 21. sæti með 815,15 stig. Hún hefur nokkrum sinnum blandað sér í baráttuna um efstu sætin og var meðal annars í öðru sæti á Allegria Ladies Open fyrr á tímabilinu. Um síðustu helgi hafnaði hún í níunda sæti á Santander Golf Tour mótsins eftir að hafa verið í forystu að loknum fyrsta hring.

Andrea er í 24. sæti stigalistans með 747,61 stig. Hún hefur sömuleiðis átt gott tímabil og náði sínum besta árangri þegar hún varð jöfn í þriðja sæti á Lavaux Ladies Open í Sviss í september. Þá hafnaði hún einnig í fjórða sæti á Ladies Slovak Golf Open í ágúst.

Kylfingar sem enda í sætum 8-32 á stigalistanum tryggja sér þátttökurétt á lokaúrtökumóti LET í desember.

Alls hafa fjórir kylfingar þegar tryggt sér keppnisrétt á LET fyrir næsta tímabil, og eru þrjú sæti því enn í boði fyrir lokamótið.

Hulda, Ragnhildur og Andrea eiga allar möguleika á að enda á meðal sjö efstu, en 500 stig eru veitt sigurvegara mótsins.

Stigalisti LET

SætiKylfingurStig
1.Lauren Holmey2.133,14
2.Natalie Armbruester1.807,42
3.Moa Svedenskiold1.790,25
4.Elsa Svensson1.621,50
5.Bel Wardle1.476,50
6.Hannah Reeves1.438,31
7.Tereza Zapletal Kozeluhova1.246,00
9.Hulda Clara Gestsdóttir1.163,33
21.Ragnhildur Kristinsdóttir815,15
24.Andrea Bergsdóttir747,61

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ