GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Hulda Clara Gestsdóttir náði frábærum árangri á Santander Golf Tour – Girona mótinu á LET Access mótaröðinni á Spáni sem lauk í dag. Hulda Clara hafnaði í fjórða sæti mótsins á átta höggum undir pari og er áfram í harðri baráttu um keppnisrétt á Ladies European Tour (LET) á næsta ári. Aðeins 82,67 stig skilja hana frá sjöunda sæti stigalistans þegar eitt mót er eftir af tímabilinu.

Hulda Clara lék lokahringinn á 66 höggum, fimm undir pari, og vann sig upp um tíu sæti á lokadeginum. Hún fékk fimm fugla og tvo skolla á hringnum, sem hún kláraði með frábærum erni á lokaholu mótsins.

Hulda lék hringina þrjá á 69, 70 og 66 höggum og deildi fjórða sætinu með Lornu McClymont frá Skotlandi og Thaliu Martin frá Englandi.

Þetta var fimmta mót Huldu Clöru á tímabilinu þar sem hún endar á meðal tíu efstu kylfinga. Hún hefur átt afar gott fyrsta tímabil sem atvinnukylfingur og vann meðal annars sinn fyrsta atvinnusigur á Czech Ladies Challenge í júní.

Frábær lokahringur Huldu

Ragnhildur Kristinsdóttir átti einnig gott mót og hafnaði í níunda sæti á sex höggum undir pari. Hún lék lokahringinn á 67 höggum, fjórum undir pari, og vann sig upp um tíu sæti á lokadeginum.

Ragnhildur var ein í forystu eftir fyrsta hring. Annar hringurinn reyndist erfiðari en hún svaraði vel fyrir sig á lokadeginum og tryggði sér sæti á meðal tíu efstu.

Andrea Bergsdóttir lauk keppni í 32. sæti á pari vallarins. Andrea lék fyrstu tvo hringina á 69 og 71 höggi og kom í hús á 73 höggum á lokahringnum.

Mikil spenna er á stigalista LET Access fyrir lokamót tímabilsins. Hulda Clara er áfram í níunda sæti listans, nú með 1.163,33 stig, og er aðeins 6,67 stigum á eftir Theresu De Bochdanovits frá Þýskalandi í áttunda sæti.

Tékkneski kylfingurinn Tereza Zapletal Kozeluhova situr í sjöunda sæti með 1.246 stig, eða 82,67 stigum meira en Hulda Clara. Sjö efstu kylfingar stigalistans að loknu tímabili tryggja sér keppnisrétt á Ladies European Tour árið 2027.

Ragnhildur Kristinsdóttir er í 21. sæti stigalistans með 815,15 stig og Andrea Bergsdóttir í 24. sæti með 747,61 stig. Báðar eru því einnig í góðri stöðu til að tryggja sér þátttökurétt á lokaúrtökumóti LET, en kylfingar í sætum 8-32 fá þátttökurétt þar.

Lokamót tímabilsins, Islantilla Open, fer fram á Spáni dagana 18.-20. nóvember. Þar mun ráðast hvort Huldu Clöru takist að vinna sig upp stigalistann og tryggja sér keppnisrétt á sterkustu atvinnumótaröð kvenna í Evrópu á næsta ári.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ