GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Ragnhildur Kristinsdóttir, Andrea Bergsdóttir og Hulda Clara Gestsdóttir fóru allar vel af stað á Santander Golf Tour mótinu á LET Access mótaröðinni á Spáni í gær. Ragnhildur lék fyrsta hringinn á 65 höggum, sex undir pari, og leiðir mótið. Hulda Clara Gestsdóttir og Andrea Bergsdóttir léku einnig vel og eru báðar á tveimur höggum undir pari, jafnar í fjórtánda sæti.

Ragnhildur hóf leik á 10. teig og lék fyrri níu holurnar á einu höggi undir pari. Hún setti í fluggírinn á seinni níu holunum þar sem hún fékk fimm fugla, þar af fjóra í röð á holum 5-8. Alls fékk Ragnhildur sjö fugla og einn skolla á hringnum og kom í hús á 65 höggum.

Með þessum frábæra hring er Ragnhildur með eins höggs forskot á fimm kylfinga sem deila öðru sætinu á fimm höggum undir pari.

Hringur Ragnhildar

Hulda Clara Gestsdóttir og Andrea Bergsdóttir hófu mótið sömuleiðis af krafti og léku báðar fyrsta hringinn á 69 höggum, tveimur undir pari. Þær eru jafnar í 14. sæti, fjórum höggum á eftir Ragnhildi.

Santander Golf Tour – Girona er næstsíðasta mót tímabilsins á LET Access og því mikið í húfi fyrir íslensku kylfingana þrjá. Sjö efstu kylfingar stigalistans að loknu tímabili tryggja sér keppnisrétt á Ladies European Tour árið 2027.

Hulda Clara er í níunda sæti stigalistans fyrir mótið, Ragnhildur í 21. sæti og Andrea í 22. sæti. Góður árangur í Girona getur haft mikil áhrif á stöðu þeirra, enda gefur sigur í mótinu 500 stig á stigalistanum.

Annar hringur mótsins fer fram í dag, föstudaginn 13. nóvember, en mótinu lýkur á laugardag. Alls taka 84 kylfingar þátt og er heildarverðlaunafé mótsins 45.000 evrur.

Hér má sjá stöðu mótsins

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ