GSÍ fjölskyldan
Three women taking a daytime selfie on a grassy field; two wear FORSKOT branded sportswear, one in a white visor and another in a black cap, with a cloudy sky behind them.
Andrea, Ragnhildur og Hulda hafa allar leikið vel á tímabilinu
Auglýsing

Hulda Clara Gestsdóttir, Ragnhildur Kristinsdóttir og Andrea Bergsdóttir hefja í dag keppni á Santander Golf Tour mótinu á Spáni. Mótið er það næstsíðasta á LET Access mótaröðinni á þessu tímabili og er mikið er í húfi.

Mótið fer fram dagana 12.-14. nóvember á Empordà Golf Club í Girona á Spáni. Leiknar verða 54 holur og er heildarverðlaunafé mótsins 45.000 evrur.

Hulda Clara er í níunda sæti stigalista LET Access með 1.015 stig þegar tvö mót eru eftir af tímabilinu. Sjö efstu kylfingar listans að loknu tímabili tryggja sér keppnisrétt á Ladies European Tour (LET) árið 2027.

Hulda Clara hefur átt gott fyrsta tímabil sem atvinnukylfingur. Hún vann sinn fyrsta atvinnusigur á Czech Ladies Challenge í Tékklandi í júní og hefur alls fjórum sinnum endað á meðal tíu efstu á mótaröðinni.

Baráttan um síðustu sætin er hörð og getur góður árangur í Girona skipt sköpum fyrir möguleika Huldu Clöru á að tryggja sér sæti á LET. Sigur í mótinu gefur 500 stig á stigalistanum, annað sætið 320 stig og það þriðja 230 stig.

Ragnhildur Kristinsdóttir og Andrea Bergsdóttir hafa sömuleiðis átt góð tímabil á LET Access og náð eftirtektarverðum árangri í nokkrum mótum. Ragnhildur situr í 21. sæti stigalistans fyrir mótið og Andrea er sæti á eftir, í 22. sætinu.

Tímabilinu lýkur á Spáni dagana 18.-20. nóvember. Að loknu því móti fá sjö efstu kylfingar stigalistans keppnisrétt á LET árið 2027, en þær sem enda í 8.-32. sæti tryggja sér þátttökurétt á lokaúrtökumóti LET.

Hér má sjá stöðu mótsins

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ