GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Formannafundur Golfsambands Íslands fór fram laugardaginn 7. nóvember á Jaðarsvelli á Akureyri. Fundurinn var vel sóttur og dagskráin fjölbreytt, þar sem farið var yfir starfsemi sambandsins, málefni golfklúbba og framtíðaruppbyggingu golfíþróttarinnar.

Fundurinn hófst á hefðbundnum fundarstörfum samkvæmt lögum GSÍ. Hulda Bjarnadóttir, forseti sambandsins, flutti skýrslu stjórnar og Jón Steindór Árnason, gjaldkeri GSÍ, fór yfir reikninga og fjárhagsáætlun fyrir árið 2027.

Stjórnarfólk GSÍ

Í framhaldinu voru fluttir örfyrirlestrar um nokkur lykilmálefni golfhreyfingarinnar. Árni Tómasson fjallaði um fjármál golfklúbba, Ragnar Baldursson um afreksmál og Arnar Geirsson um gagnagreiningu og nýliðafræðslu.

Robbie Clyde, framkvæmdastjóri skoska golfsambandsins, var gestur fundarins og kynnti starf Scottish Golf. Í erindi hans var meðal annars fjallað um Open Play, nýliðun og afreksmál.

Brynjar Eldon Geirsson Robbie Clyde og Hulda Bjarnadóttir

Aðstaða og aðgengi golfhreyfingarinnar voru til umræðu í vinnustofu undir stjórn Huldu Bjarnadóttur og Arnars Geirssonar. Þá fjallaði Karen Sævarsdóttir um mótahald GSÍ og hlutverk mótaraða sambandsins og Steindór Kristinn Ragnarsson frá Golfklúbbi Akureyrar um golfvallarumhirðu til framtíðar og aðstöðu. Sigríður K. Hrafnkelsdóttir, lýðheilsufræðingur, fór að lokum yfir samfélagslegt virði íþróttarinnar og nýútgefna skýrslu GSÍ um málaflokkinn.

Frá vinnustofu fundarins

Á fundinum voru einnig veittar viðurkenningar fyrir mikilvægt framlag til golfhreyfingarinnar. Anna María Reynisdóttir úr Golfklúbbnum Vestarr var útnefnd sjálfboðaliði ársins, Golfklúbbur Akureyrar hlaut Sjálfbærniverðlaun GSÍ og Akureyrarbær hlaut heiðursskjal sambandsins. Þá voru silfur- og gullmerki GSÍ afhent fyrir verðmæt störf í þágu íslensks golfs. Rósa Jónsdóttir, GFB, fékk gullmerki fyrir sín störf í gegnum árin. Steindór Kristinn Ragnarsson, GA, var einnig á staðnum og tók við silfurmerki GSÍ.

Golfsamband Íslands þakkar Golfklúbbi Akureyrar ásamt öllum sem stóðu að fundinum fyrir þeirra framlag, fyrirlesurum fyrir fróðleg erindi og fundargestum fyrir gagnlegar umræður.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ