Kvennasveit Golfklúbbs Mosfellsbæjar endaði í 13. sæti á Evrópumóti golfklúbba, European Ladies’ Club Trophy, sem lauk laugardaginn 3. október á Falkenstein velli Hamburger Golf Club í Hamborg í Þýskalandi. Alls tóku 19 sveitir þátt í mótinu.
GM lék á 40 höggum yfir pari, en tvö bestu skor liðsins töldu á hverjum keppnisdegi. Liðið var í 11. sæti eftir fyrsta keppnisdag.
Arna Rún Kristjánsdóttir, Kristín Sól Guðmundsdóttir og Katrín Sól Davíðsdóttir skipuðu sveit GM. Arna Rún lék best þeirra, en hún endaði á tólf höggum yfir pari. Hún lék hringi sína á 71, 78 og 76 höggum og endaði í 25. sæti einstaklingskeppninnar.
Kristín Sól lék á 79, 80 og 86 höggum, 32 höggum yfir pari og endaði í 43. sæti. Katrín Sól lék á 85, 83 og 82 höggum og endaði í 46. sæti.
GM vann sér þátttökurétt með sigri á Íslandsmóti golfklúbba á Hlíðavelli í ágúst. Þar hafði liðið betur gegn Golfklúbbi Akureyrar í úrslitaleik, 3.5-1.5, og fagnaði sínum fjórða Íslandsmeistaratitli á síðustu fimm árum.
Hér má sjá skor GM og öll úrslit mótsins.




