GSÍ fjölskyldan
Auglýsing

Hlynur Bergsson er jafn í efsta sæti Folksam Championship í Svíþjóð fyrir lokahring mótsins. Hann lék annan hringinn á 70 höggum, þremur undir pari, og er á sjö höggum undir pari í heildina. Dagbjartur Sigurbrandsson lék á 72 höggum í dag, einu undir pari, og er jafn í fjórða sæti, aðeins einu höggi á eftir Hlyni.

Hlynur lék fyrsta hringinn á 69 höggum og byrjaði af krafti í dag. Hann lék fyrri níu holurnar á 32 höggum en þær síðari á 38 og lauk leik á 70 höggum. Með honum í efsta sæti eru Svíinn Albin Tidén og Finninn Oskari Nikku.

Dagbjartur var í þriðja sæti eftir fyrsta hring upp á 68 högg. Í dag lék hann bæði fyrri og seinni níu holurnar á 36 höggum og kom inn á 72. Hann er samtals á sex höggum undir pari og deilir fjórða sætinu með Sebastian Eidsæther Syr frá Noregi og David Lundgren frá Svíþjóð.

Folksam Championship er leikið á Barsebäck Golf & Resort. Völlurinn er par 73 og er mótið hluti af Nordic Golf League.

Fylgjast með stöðu og úrslitum mótsins

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ