GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Myndir verða uppfærðar
Auglýsing

66°Norður mótinu á Urriðavelli lauk í dag, sunnudaginn 6. september. Mótið var síðasta mót ársins á Golf 14 mótaröðinni.

Keppt var í fjórum flokkum og leiknar 36 holur í höggleik án forgjafar, 18 holur hvorn keppnisdag. Alls voru 124 kylfingar skráðir til leiks.

Ásgeir Páll sigraði með eins höggs mun

Mikil spenna var í flokki 14 ára og yngri drengja. Ásgeir Páll Baldursson úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar og Jón Ómar Sveinsson úr Golfklúbbnum Keili léku fyrsta hringinn báðir á 71 höggi.

Ásgeir lék lokahringinn á 75 höggum og lauk leik á fjórum höggum yfir pari. Jón Ómar endaði einu höggi á eftir, en hann lék lokahringinn á 76 höggum.

Emil Darri Birgisson úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar varð þriðji á 149 höggum, sjö yfir pari.

Elísabet Þóra best í flokki 14 ára og yngri

Elísabet Þóra Ólafsdóttir úr Nesklúbbnum sigraði í flokki 14 ára og yngri stúlkna. Hún lék hringina tvo á 79 og 80 höggum og lauk leik á sautján höggum yfir pari.

Emilía Sif Ingvarsdóttir úr Golfklúbbnum Oddi varð önnur og Embla Sigrún Arnsteinsdóttir úr Golfklúbbi Akureyrar þriðja.

Eiríkur Bogi og Styrmir jafnir eftir 36 holur

Eiríkur Bogi Karlsson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar stóð uppi sem sigurvegari í flokki 12 ára og yngri drengja.

Eiríkur og Styrmir Ragnarsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur léku mótið báðir á tólf höggum yfir pari. Eiríkur lék hringina á 76 og 78 höggum en Styrmir á 82 og 72 höggum. Eiríkur tryggði sér sigurinn í bráðabana.

Jón Agnar Magnússon úr Nesklúbbnum og Ísak Hrafn Jónasson úr Golfklúbbi Reykjavíkur deildu þriðja sætinu.

Ásta Sigríður sigraði með þriggja högga mun

Ásta Sigríður Egilsdóttir úr Golfklúbbnum Oddi sigraði í flokki 12 ára og yngri stúlkna. Hún lék hringina á 81 og 79 höggum og lauk leik á átján höggum yfir pari.

Edda María Hjaltadóttir úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar varð önnur og Arna Dís Hallsdóttir, einnig úr GKG, varð þriðja.

Öll úrslit 66°Norður mótsins má finna hér

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ