GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Myndir verða uppfærðar síðar í dag
Auglýsing

66°Norður mótinu á Ljúflingi lauk í dag, sunnudaginn 6. september. Mótið var síðasta mót ársins á frábæru Golf 14 tímabili.

Alls tóku 55 kylfingar þátt og var keppt í sex flokkum. Leiknar voru níu holur hvorn keppnisdag, samtals 18 holur, í höggleiksafbrigði án forgjafar þar sem hámarksskor á hverri holu var tíu högg. Mótið var ætlað kylfingum með 36,1 eða hærri forgjöf og var áhersla lögð á að öðlast reynslu af mótahaldi, læra leikinn og hafa gaman.

Gunnar Erlingur Hákonarson úr Golfklúbbi Þorlákshafnar sigraði í flokki 10 ára og yngri drengja. Hann lék hringina tvo á 70 höggum og bætti sig um sex högg á milli daga, úr 38 höggum í 32. Darri Þór Tómasson úr Golfklúbbi Suðurnesja varð annar á 74 höggum og Edvard Aron Magnússon úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar þriðji á 77 höggum.

Í flokki 10 ára og yngri stúlkna vann Edda Elmarsdóttir úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar á 77 höggum. Hrafnhildur Rún Björnsdóttir úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar varð önnur á 81 höggi og Anna Lind Valdimarsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur þriðja á 88 höggum.

Aðalsteinn Kjaran Egilsson úr GKG sigraði í flokki 12 ára og yngri drengja á 76 höggum. Klúbbfélagar hans, Steindór Óli Ómarsson og Arnar Rósenkranz Þórðarson, deildu öðru sætinu á 79 höggum.

Í flokki 12 ára og yngri stúlkna sigraði Elísa Bríet Róbertsdóttir úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar á 76 höggum. Iðunn Jóhanna Frostadóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur varð önnur á 81 höggi og Þórunn Emma McGinley úr Golfklúbbnum Keili þriðja á 82 höggum.

Aron Logi Baldursson úr Golfklúbbi Reykjavíkur sigraði í flokki 14 ára og yngri drengja á 76 höggum. Kristófer Jens K. Sandholt úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar varð annar á 78 höggum og Sævar Hrafn Garðarsson úr GR þriðji á 79 höggum.

Anna Dís Strange úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar sigraði í flokki 14 ára og yngri stúlkna á 82 höggum. Eygló Rún Ingadóttir, einnig úr GM, varð önnur á 84 höggum og Alexandra Fenger úr Golfklúbbnum Oddi þriðja á 94 höggum.

Smelltu hér til að skoða öll úrslit mótsins.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ