GSÍ fjölskyldan
Auglýsing

Íslandsmót unglinga í höggleik fara fram dagana 20.-22. ágúst. Keppt verður á tveimur völlum, en kylfingar á aldrinum 15-18 ára leika á Hvaleyrarvelli hjá Golfklúbbnum Keili og kylfingar 14 ára og yngri á Þorláksvelli hjá Golfklúbbi Þorlákshafnar.

Keppt verður í átta aldursflokkum og leikinn höggleikur án forgjafar. Hægt verður að fylgjast með rástímum, stöðu og úrslitum beggja móta í gegnum hlekki hér að neðan.

Íslandsmót unglinga 15-18 ára

Mót kylfinga á aldrinum 15-18 ára fer fram á Hvaleyrarvelli. Leiknar verða 54 holur, 18 holur á hverjum keppnisdegi.

Keppt verður í fjórum flokkum:

  • Stúlknaflokki 15-16 ára
  • Stúlknaflokki 17-18 ára
  • Piltaflokki 15-16 ára
  • Piltaflokki 17-18 ára

Að loknum 36 holum verður keppendum fækkað þannig að 70% þeirra kylfinga sem eru með besta skorið í hverjum flokki halda áfram keppni á lokahringnum.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit í flokki 15-18 ára

Íslandsmót unglinga 14 ára og yngri

Golf 14 kylfingarnir leika á Þorláksvelli. Í flokki 12 ára og yngri verða leiknar 27 holur, níu holur á hverjum keppnisdegi. Í flokki 13-14 ára verða leiknar 54 holur, 18 holur á dag.

Keppt verður í fjórum flokkum:

  • Stúlknaflokki 12 ára og yngri
  • Piltaflokki 12 ára og yngri
  • Stúlknaflokki 13-14 ára
  • Piltaflokki 13-14 ára

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit í flokki 14 ára og yngri

Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í öllum átta flokkunum. Verði tveir eða fleiri keppendur jafnir í efsta sæti verður leikinn bráðabani um Íslandsmeistaratitilinn.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ