GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Allt er jafnt í úrslitaleik Ólivers Elí Björnssonar og Svíans Ludwigs Libera á Opna breska áhugamannamóti pilta þegar fyrri 18 holunum er lokið. Leiknar eru 36 holur í holukeppni í úrslitaleiknum.

Leikurinn hefur verið í járnum frá upphafi og hvorugur kylfingur hefur náð meira en einnar holu forskoti. Óliver byrjaði vel og vann fyrstu holuna með fugli en Libera jafnaði leikinn á þeirri fimmtu.

Óliver komst aftur yfir með pari á áttundu holu, en Libera svaraði strax og jafnaði á þeirri tíundu. Svíinn vann síðan elleftu holuna og komst yfir í fyrsta sinn í leiknum.

Viðbrögð Ólivers voru góð. Hann fékk tvo fugla í röð á tólftu og þrettándu holu og komst aftur eina holu upp. Libera jafnaði á 16. holu og kylfingarnir voru áfram jafnir eftir átján.

Seat map of a venue with rows numbered 1–18, showing two passengers (Libera Ludvig and BjörnsSon Oliver El) and selected seats highlighted in red/blue tiles.
Fyrri hringur úrslitaleiksins

Óliver hefur leikið frábært golf alla vikuna. Hann hefur nú unnið fimm leiki í röð í útsláttarhluta mótsins. Í undanúrslitunum hafði hann betur gegn Tao Pemerika frá Frakklandi, ríkjandi Evrópumeistara unglinga.

Sigurvegari mótsins fær meðal annars þátttökurétt í Opna breska áhugamannamótinu og kemst beint í lokaúrtökumót fyrir The Open.

Hægt er að fylgjast með úrslitaleiknum á heimasíðu The R&A.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ