GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Óliver Elí Björnsson úr Golfklúbbnum Keili er kominn í 32 manna úrslit á The R&A Boys’ Amateur Championship eftir sigur í fyrsta leik sínum í holukeppninni í dag.

Fjórir íslenskir landsliðskylfingar tóku þátt í The Boys’ og Girls’ Amateur Championship, sem hófust í Skotlandi á mánudag. Óliver Elí var sá eini þeirra sem tryggði sér sæti í 64 manna úrslitum að loknum tveimur hringjum í höggleik.

Óliver lék fyrsta hring mótsins á 76 höggum, fimm yfir pari, og var jafn í 118. sæti. Hann lék annan hringinn á 66 höggum, sem reyndist fjórði besti hringur dagsins, og tryggði sér sæti í holukeppninni.

Þar hélt Óliver áfram góðri spilamennsku og vann leik sinn í 64 manna úrslitum gegn Skotanum Aidan Lawson 3/2. Hann er því kominn áfram í 32 manna úrslit, þar sem hann mætir Adam Fahey frá Írlandi.

Gunnar Þór Heimisson og Arnar Daði Svavarsson, báðir úr GKG, tóku einnig þátt í piltamótinu á Gailes Links. Gunnar Þór fór vel af stað og lék fyrsta hringinn á 72 höggum, einu yfir pari. Gunnar náði hins vegar ekki að halda sæti sínu á öðrum hringnum og lauk keppni að höggleiknum loknum.

Arnar Daði lék fyrsta hringinn á 77 höggum, sex yfir pari. Hann lék seinni hring sinn á 73 höggum og komst ekki áfram í holukeppnina.

Three young golfers pose together under an R&A Boys' Amateur Championship arch with trophy graphics on the sides, blue sky behind them.
Gunnar Arnar og Óliver

Bryndís Eva Ágústsdóttir úr Golfklúbbi Akureyrar var eini íslenski keppandinn í The Girls’ Amateur Championship, sem fram fer á Craigielaw-vellinum. Bryndís lék hringi sína á 78 og 79 höggum og náði ekki inn í útsláttarhluta mótsins.

Young woman posing under an R&A Girls' Amateur Championship sign at an outdoor golf event.
Bryndís Eva

Alls hófu 144 kylfingar leik í hvoru móti. Eftir 36 holu höggleik héldu 64 efstu áfram í holukeppni, þar sem leikið verður með útsláttarfyrirkomulagi þar til sigurvegarar verða krýndir laugardaginn 15. ágúst.

Bæði mótin eru meðal sterkustu og virtustu unglingamóta heims. Á meðal fyrrverandi sigurvegara eru José María Olazábal, Sergio García, Matt Fitzpatrick, Anna Nordqvist, Suzann Pettersen og Georgia Hall.

Hægt er að fylgjast með The Boys’ Amateur og The Girls’ Amateur á heimasíðu The R&A.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ