GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Íslandsmótið í golfi fer fram á Korpúlfsstaðavelli dagana 6.-9. ágúst. Alls eru 48 kylfingar skráðir til leiks í kvennaflokki og stefnir allt í mikla baráttu um Íslandsmeistaratitilinn.

Meðalforgjöf keppenda flokksins er 1,6. Tólf kylfingar eru með 0 eða lægra í forgjöf og sjö forgjafarlægstu kylfingar mótsins eru með +1,6 eða lægra.

Golfklúbbur Reykjavíkur á flesta keppendur í kvennaflokki, alls tíu. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar á níu kylfinga, en Golfklúbbur Mosfellsbæjar og Golfklúbburinn Keilir eiga átta hvor. Alls eiga tólf golfklúbbar kylfinga í kvennaflokki mótsins.

Ragnhildur með lægstu forgjöfina

Atvinnukylfingurinn Ragnhildur Kristinsdóttir úr GR er forgjafarlægsti kylfingurinn á keppendalistanum með +3,9 í forgjöf. Hún hefur leikið frábært golf á tímabilinu og mætir á heimavöll með augun á titlinum.

Ragnhildur varð önnur á Allegria Ladies Open á LET Access-mótaröðinni í Austurríki í maí og fylgdi þeim árangri eftir með sigri í Korpubikarnum á Korpúlfsstaðavelli. Þar lék hún lokahringinn á 65 höggum og vann með fimm högga mun. Hún varð einnig jöfn í þriðja sæti á Women’s English Open fyrr í júlí og situr í tíunda sæti stigalista LET Access-mótaraðarinnar.

Ragnhildur varð Íslandsmeistari árið 2023 og hefur margoft verið í baráttu um titilinn. Að þessu sinni fær hún tækifæri til að sækja sinn annan titil, nú á heimavelli.

Guðrún Brá mætir í titilvörn

Ríkjandi Íslandsmeistarinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili er næst forgjafarlægst með +3,6. Guðrún vann sinn fjórða Íslandsmeistaratitil á Hvaleyrarvelli í fyrra eftir umspil við Huldu Clöru Gestsdóttur. Áður hafði hún sigrað þrjú ár í röð, frá 2018 til 2020.

Guðrún vann sér inn þátttökurétt á LET-mótaröðinni fyrir tímabilið og hefur leikið í sex mótum á þessu stærsta sviði atvinnukylfinga í Evrópu í sumar. Hún hefur þegar unnið Íslandsmeistaratitil á árinu, en hún varð Íslandsmeistari í holukeppni á Urriðavelli í júní. Þá stóð hún einnig uppi sem sigurvegari í Hvaleyrarbikarnum í júlí, og hefur því unnið bæði mót sín hér á landi í sumar.

Perla Sól leiðir stigalistann

Eva Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar er með þriðju lægstu forgjöfina, +2,9. Eva hefur leikið vel í sumar og vann meðal annars mót GSÍ mótaraðarinnar í Þorlákshöfn. Hún var einnig á verðlaunapalli í Korpubikarnum og Reykjanesmótinu.

Guðrún J. Nolan Þorsteinsdóttir kemur næst með +2,0 og Karen Lind Stefánsdóttir, GKG, er með +1,7. Karen er fjórða á stigalista mótaraðarinnar, en hún hefur leikið mjög vel í sumar. Hún stóð uppi sem sigurvegari Lexus bikarsins sem lauk um helgina, sem var síðasta mótið fyrir Íslandsmót.

Elsa Maren Steinarsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni og Perla Sól Sigurbrandsdóttir úr GR eru báðar með +1,6. Perla verður ein þeirra sem stefnir á sigur á heimavelli. Hún varð Íslandsmeistari í Vestmannaeyjum árið 2022, aðeins 15 ára gömul, og er næstyngsti sigurvegari mótsins frá upphafi.

Perla hóf sumarið með sigri á Reykjanesmótinu og varð síðan önnur í Korpubikarnum. Hún hefur endað í verðlaunasæti í fimm af sex mótum tímabilsins og er efst á stigalista kvenna. Hún varð jafnframt þriðja á Íslandsmótinu í fyrra og lék þá á besta skori áhugakylfings í kvennaflokki.

Fjórir fyrrverandi meistarar

Fjórir kylfingar á keppendalistanum hafa áður orðið Íslandsmeistarar í golfi. Auk Guðrúnar Brár, Ragnhildar og Perlu Sólar er þar Þórdís Geirsdóttir úr Keili, sem varð Íslandsmeistari árið 1987.

Þórdís varð nýverið Íslandsmeistari í flokki 50 ára og eldri og varði þar titil sinn. Hún heldur því áfram að bæta við glæsilegan feril og verður enn á ný á meðal keppenda á stærsta móti ársins.

Það stefnir allt í frábært Íslandsmót á Korpúlfsstaðavelli í ágúst. Við hvetjum alla sem geta til að mæta á völlinn og fylgjast með okkar bestu kylfingum leika um Íslandsmeistaratitilinn.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ